Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1943, Side 38
86
Hofsós. Nokkur tilfelli í krökkum sem fylgikvilli mislinga og in-
flúenzu.
ólnfsfj. Súlfapýridín reyndist vel sem fyrr. Hefur enginn lungna-
hólgusjúklingurinn dáið, frá því að ég fór að nota lyfið.
Reykdæla. í kjölfar inflúenzunnar. 2 gamalmenni dóu.
Þistilfj. Bati undantekningarlaust fljótlega af tabl. sulfathiazoli
(16—24).
Vopnafj. Karlmaður, 75 ára, dó af afleiðingum kveflungnabólgu.
Hafði legið lengi og mjög af honum dregið, er læknis var vitjað, og
þótti þvi of seint að nota súlfalyf. Annars virðist mér flestum sjúk-
lingum hafa batnað fljótt og vel af þeim lyfjum.
Fljótsdals. [ sambandi við kvefsótt og mislinga. Allir sjúklingarnir
fengu súlfalyf og batnaði fljótt.
Seijðisfj. Dagenan hafði engin áhrif á 1 sjúklinginn. Koinst hann
alveg í dauðann. Sá maður þar muninn og á hinum, sem batnaði á 2.
eða 3. degi.
Fáskrúðsfj. Súlfapýridín notað með góðum árangri, að einu tilfelli
undanteknu.
-Mýrdals. Batnaði vel við súlfalyf.
Vestmannaeyja. Bar talsvert á henni, einkurn upp úr kvefsótt og
inflúenzu. Læknar hér riota mikið súlfanilamíð (Dagenan M & B
693), og þykir það reynast vel, en gætni þarf með við notkun þess, og
hygg ég, að stundum sé það til lítilla bóta, ef ekki er fljótt hætt við
það, þegar á eitrun ber.
Grimsnes. Nokkuð bar á kveflungnabólgu upp úr inflúenzunni og'
kvefsóttinni. Reyndist súlfapýridín vel hér eins og fyrr. 1 sjúklingur,
fullorðin kona, dó úr veikinni. Var ómöguleget að koma í hana lyfinu,
vegna þess að hún kastaði því strax upp.
Iíeflavikiir. í sambandi við og upp úr mislingum fengu mörg börn
allskæða kveflungnabólgu, sérstaklega seinni mánuðina, sem misling-
arnir gengu. Yfirleitt fannst mér súlfalyfin verka ágætlega á lungna-
bólguna og árangur af þeim mjög góður.
2. Um taksótt:
Læknar láta þessa getið:
Rvík. Á taksótt bar heldur lítið á árinu. Vafalaust ber að þakka
súlfalyfjunum, hve dauðsföll urðu fá.
Borgarnes. Fengu flestir dagenan og reiddi vel af.
Bíldudals. Af 2 sjúklingum dó annar, 65 ára kona með ca. ventriculi.
Hóls. Taklungnabólgu fengu 2 á árinu. Boskið fólk og var þungt
haldið. Náðu þeir sé þó allvel, enda virtust dagenantöflur verka hér
með ágætum.
ísafj. Flest tilfelli síðast liðin 10 ár, en ekkert mannslát. Á árinu
byrjuðum við hér að nota súlfathiazol við Iungnabólgu, en það þolist
miklu betur en dagenan.
Ögur. Eitt tilfellanna mjög hastarlegt. Batnaði af dagenan, sem var
gefið strax, er maðurinn veiktist, samkvæmt ráðleggingu í síma.
Hólmavikur. Súlfapýridin reyndist vel við hvorri tveggja lungna-
bólgunni.