Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1943, Blaðsíða 39
37
Miðjj. Óvenju fá tilfelli.
Sauðárkróks. Þeir, sem veiktust, lifðu allir.
Hofsós. Allmörg tilfelli, ekkert dauðsfall.
Mýrdals. Súlfalyf reyndust óbrigðul.
Kcflavikur. Meira ber á taksótt en undanfarin ár, en engan vissi ég
deyja úr henni. Kom nokkrum sinnum fyrir, að sjómenn, sem lentu
í hrakningum, fengu lungnabólgu, en verkun siilfalyfjanna var nærri
óbrigðul, ef þau voru gefin nógu snemma.
14. Rauðir hundar (rubeolae).
Töflur II, III og IV, 14.
Sjúklingafjöldi 1934—1943:
1934 1935 1936 1937 1938 1939 1940 1941 1942 1943
Sjúkl........ 3 9 9 32 55 8 781 1566 29 94
Stingur sér enn hér og þar niður, en varla svo, að nokkurs staðar
_ Meti heitið faraldur nema í Akureyrarhéraði í apríl—maí.
Læknar láta þessa getið:
Fáskrúðsjj. Sennilega komnir úr Reyðarfjarðarhéraði. Breiddust
ekki út.
15. Skarlatssótt (scarlatina).
Töflur II, III og IV, 15.
Sjúklingafföldi 1934—1943:
1934 1935 1936 1937 1938 1939 1940 1941 1942 1943
Sjúkl......... 900 109 70 288 197 64 33 158 321 456
Dánir ........ 22 2 2 „ „ 1 „ „ 1 2
Fer nú aftur mjög í vöxt. Gekk aðallega í Reykjavík og á Akureyri,
en stakk sér annars hér og þar niður og' barst milli landshluta með
skólafólki og öðrum unglingum, sein eru á faraldsfæti. í einhverjum
heimavistarskólanna á hún og því nær ætíð vís ítök.
Læknar láta þessa getið:
Rvík. Allmikill faraldur fyrstu 4 mánuði ársins. Sjúklingarnir eru
undantekningarlítið einangraðir í Farsóttalnisinu. Nú fylllist það brátt,
og varð að gripa til þeirrar neyðarráðstöfunar að einangra suma
sjúklingana í heimahúsum, sem vitanlega varð til þess, að veikin
hreiddist enn þá meira út en ella hefði mátt búast við.
Borgarff. Forstöðukona barnaheimilisins í Reykholti veiktist af
skarlatssótl í júní, flutt þegar í stað á farsóttahúsið í Reykjavík, sótt-
Jvví, sótthreinsun; fleiri veiktúst ekki í það skipti. 3. ágúst veiktist 1
harnanna af skarlatssótt; var það einnig flutt til Reykjavíkur, og
varð ekki meira úr veikinni.
Hóls. Greinilegt skarlatssóttartilfelli í marzmánuði. Voru þar á
heimili 3 börn önnur á svipuðu reki. Sjúklingurinn var látinn liggja
i sérstakri stofu, en þó mun einangrun ekki hafa verið fullkomin.