Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1943, Page 44
42
Nú hefur aftur dregið mjög úr heilasótt, og eru aðeins 5 tilfelli
skráð í jafnmörgum héruðum (Blönduós, Vopnafj., Fáskrúðsfj., Eyr-
arbakka og Keflavíkur). Er sjúkdómsgreining jafnvel sums staðar
vafasöm. Mannslát ekkert, og koina súlfalyfin hér í góðar þarfir, en
leiðar menjar bera sumir sjúklingarnir eftir veikina.
Læknar láta þessa getið:
Rvík. Að heilasótt kvað lítið á árinu (ekkert tilfelli skráð).
Blönduós. Kom fyrir einu sinni, var væg og batnaði þegar við
dagenan.
Vopnafj. Barn uppi í sveit fékk hita og upp úr því riðu, stirðar
lireyfingar — ataxi — og einkennilegt sinnuleysi. Virtist því hafa
verið um einhvers konar meningitis að ræða. Var lengi að ná sér, en
er nú albata.
Fáskrúðsfj. Heilasótt fékk 3ja ára drengur. Hafði daginn áður orðið
fyrir höfuðhöggi. Fékk hann súlfapýridín i stórum skömmtum og
batnaði, en missti nærri alveg heyrnina.
Keflavikur. Ein telpa 6 ára varð rænulaus. Var gerð mænustunga
og' smásjárrannsókn á vökvanum. Frarn yfir allar vonir fékk hún
fullan bata af súlfalyfjum.
24. Stingsótt (pleuritis epidemica).
Töflur II, III og IV, 24.
S júklingafjöldi 1934—1943:
1934 1935 193G 1937 1938 1939 1940 1941 1942 1943
Sjúkl........ 28 30 17 9 20 8 21 15 76 20
Stakk sér niður í 4 héruðum (Hóls, ísafj., Blönduós og Norðfj.). Bar
einkum á faraldri á ísafirði og í Bolungarvík í byrjun ársins, og hafði
hafizt árið fyrir.
Læknar láta þessa getið:
Borgarnes. Pleuritis sicca sá ég þrisvar, a. m. k. tvisvar non specifica.
Ekki skráð á mánaðarskrár.
Hóls. Stingsótt fengu nokkrir í janúar. Höfðn verið nokkur brögð
að þessum sjúkdómi árið áður. Sótthiti fylgdi stundum og flestir voru
slæmir af sting undir síðu í nokkra daga.
ísafj. Nokkur tilfelli greinileg. Voru öll röntgenskyggnd, en hvergi
fundust breytingar í brjósthimnu.
Blönduós. Kom tvisvar fyrir á Blönduósi um sama leyti á miðaldra
fólki.
Norðfj. Á 2 sjúklinga á sama heimilinu skellti ég þessari vafasömu
sjúkdómsgreiningu — vafasöm, einkum þegar fleiri komu ekki í Ijós.
25. Mænusótt (poliomyelitis anterior acuta).
Töflur II, III og IV. 25.
Sjúklingafjöldi 1934—1943:
1934 1935 1936 1937 1938 1939 1940 1941
Sjúkl......... 7 300 53 5 81 12 3 1
Dánir ........ 1 29 5 2 3 „ „ „
1942
1
1943