Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1943, Side 45
43
Gerði hvergi vart við sig á árinu.
Læknar láta þessa getið:
Blönduós. Hefur ekki orðið vart nú um nokkurra ára skeið.
26. Munnangur (stomatitis epidemica).
Töflur II, III og IV, 26.
S júklingafiöldi 1934—1943:
1934 1935 1936 1937 1938 1939 1940 1941 1942 1943
Sjúkl......... 218 140 171 109 145 129 171 102 106 119
Læknar láta þessa getið:
fíink. Stakk sér niður mest allt árið.
Bíldudals. Stingur sér niður við og við.
ísafi. Nokkur tilfelli, dreifð yfir flesta mánuði ársins.
Hólmavikur. Kemur alloft fyrir. Oft beðið um þruskusaft.
Miðfi. Stakk sér niður hér seinna hluta ársins.
Fáskrúðsfi. Verður vart við og við (ekki skráð).
Vestmannaeyja. Örfá tilfelli, en enginn faratdur (ekki skráð).
27. Hlaupabóla (varicellae).
Töflur II, III og IV, 27.
S júklingafiöldi 1934—1943:
1934 1935 1936 1937 1938 1939 1940 1941 1942 1943
Sjúkl........... 315 178 256 292 385 292 245 133 337 516
Gekk með mesta móti, einkum í Reykjavík, Hafnarfirði, á Aust-
fjörðum og Eyrarbakka.
Læknar láta þessa getið:
Rvik. Talsvert mikið bar á hlaupabólu, einkum fyrra hluta ársins.
Borgarnes. Hlaupabóla gerði vart við sig i árslokin. Ekki talin á
skrá.
Höfðahverfis. Barst liingað í nóvembermánuði, hvaðan og hvernig
ekki upplýst, breiddist nokkuð út. Ekki munu allir þeir, er hana
fengu, skráðir á mánaðarskrá.
Fljótsdals. Aðeins vart sumarmánuðina, væg.
Segðisfi. 12 ára stúlka veiktist í október af hlaupabólu. Kom hún
frá Norðfirði, 14 dögum áður en hún veiktist, en þar gekk veikin. Sjúk-
lingurinn var einangraður, og varð ekki varicellæ vart út árið.
Norðfi. Gerði vart við sig allt árið, og frétti ég af mun fleirum en
skráðir voru.
Vestmannaeyja. Varð vart. Enginn faraldur.
Egrarbakka. Var i Menntaskólaselinu, og vafalítið þangað komin
úr Reykjavík.
Auk framangreindra farsótta geta læknar um þessar bráðar sóttir:
Angina Plaut-Vincent: í Reykjavík er að vanda getið allmargra til-
fella, eða 22 alls, og í þetta sinn i öllum mánuðum (2—3 tilf. i hverj-