Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1943, Síða 49
47
hefðu fullan vilja á að stunda hana. Þá sjúklinga, sem heima hafa
verið að staðaldri, hefur yfirleitt gengið sæmilega að fá til lækningar
°g halda henni áfram. Að öllu samanlögðu er ég að vona, að lækn-
ingin hafi í flestum tilfellum nægt til að koma í veg fyrir framsmitun,
enda ekki enn komið neitt annað fram.
Fáskrúðsfi. Maður frá Færeyjum sinitaðist á Englandi.
Hornafí. Lekandasjúklingarnir sennilega vertíðarfólk.
Síðu. Hef ekki orðið kynsjúkdóma var.
Vestmannaeyja. Súlfalyfin (dagenan, sulfathiazol og' uliron) revnast
vel og stundum prýðilega, þó að ekki séu þau óhrigðul. 2 sjómenn, ný-
smitaðir af sýfílis, smituðust báðir í Fleetwood, eins og átti sér stað
fyrra ár. Kynsjúkdómar mega teljast hér viðloðandi.
Grímsnes. Varð ekki vart á árinu.
Keflavikur. 1 innlend stúlka fékk sárasótt. Batnaði eftir nokkra
mánuði.
2. Berklaveiki (tuberculosis).
Töflur V, VI. VIII, IX og XI.
Sjúklingafíöldi 1934—1943:
1. Eftir mánaðarskrám:
1934 1935 193« 1937 1938 1939 1940 1941 1942 1943
Tb. pulm. .. 392 291 304 251 200 237 161 224 156 180
Tb. al. loc, .. 434 293 197 169 120 109 68 127 75 87
Alls ........... 826 584 501 420 320 346 229 351 231 267
Dánir .......... 165 149 157 155 106 94 104 120 104 106
2. Eftir berklaveikisbókum (sjúkl. i árslok):
1934 1935 193« 1937 1938 1939 1940 1941 1942 1943
Tb. pulm. .. 917 1064 1028 998 967 851 867 854 853 799
Tb. al. loc. .. 714 764 674 526 511 236 239 259 282 250
Alls .......... 1631 1828 1702 1524 1478 1087 1106 1113 1135 1049
Berkladauðinn má heita óbreyttur frá fyrra ári. Heilaberkladauð-
mn nemur 7,5% alls berkladauðans, og hefur það hlutfall aðeins einu
^inni orðið lægra (1941: 6,7%).
Skýrslur um berklapróf hafa börizt úr 33 héruðum, og taka þau til
9242 manns. Skiptist sá hópur þannig eftir aldri og útkomu:
0- - 7 ára: 776, þar af jákvæð 49, eða 6,3 %
7- -14 —: 6986 845 — 12,1 —
14- -20 —: 1057 325 30,7 —
Yfir 20 —: 423 — — — 171 — 40,4 —
Skýrsla berklayfirlæknis 1943.
Arið 1943 voru framkvæmdar berklarannsóknir (röntgenrann-
8óknir) í 15 læknishéruðum. Voru alls rannsakaðir 15524 manns, á 6
heilsuverndarstöðvum 13202, aðallega úr 7 læknishéruðum (Hafnar-