Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1943, Síða 52
50
berkla í Flateyrarhreppi nú. í Mosvaliahreppi voru 22 böin prófuð,
og reyndust öll neikvæð. Þar ínun nú enginn berklasjúklingur, sem
talizt getur virkur.1)
Hóls. Mér virðist berklaveikin heldur í rénun hér. Almennt hefur
fólk áhuga á því að lækna sig' og sína og útrýma veikinni. Þó vill
jafnan nokkuð bera á þvermóðsku einstaklinga gegn þeim ráðstöfun-
um, er þurfa þykir.
ísajj. Fleiri sjúklingar nýskráðir en áður, en fjölgunin kemur á
utanhéraðssjúklinga, sem skráðir eru hér á berklastöðinni. Með einni
smitandi konu norðan úr Aðalvík komu 3 sýktir af henni, og með
annarri smitandi konu af Snæfjallaströnd ]<omu 2 börn hennar sýkt,
og dó annað.
Ögur. 1 nýr sjúklingur í desember. Eftir áramótin gerð berkla-
skoðun í umhverfi hennar.
Hesteyrar. Kona ein gift, sem veiktist árið áður, var snemma árs
flutt á sjúkrahús ísafjarðar, en hafði áður smitað 3 menn, sem allir
veiktust og voru líka fluttir á sjúkrahús. í árslok dvelur, mér vitan-
lega, enginn berklaveikur í héraðinu .
Miðjj. 1 nýr sjúklingur. í haust gerð rækileg berklaskoðun í Hrúta-
firði. Aðstoðarlæknir berklayfirlæknis skyggndi alla nemendur og
starfsfólk Reykjaskóla, enn fremur mikinn fjölda fólks beggja megin
fjarðarins, einkum þau heimili, sem héraðslæknir áleit, að mest þört
væri að rannsaka. Við skoðunina fannst ekkert berklaveikistilfelli,
enda þótt búast hefði mátt við, þar eð áberandi margir berklasjúk-
lingar hafa komið frá þessu svæði undanfarin ár.
Blönduós. Hefur farið þverrandi þrátt fvrir inflúenzu og mislinga.
Enginn dó úr berklum á árinu.
Sauðárkróks. Nýskráðir og skráðir í árs-lok með fæsta móti. Af 134
skólabörnum á Sauðárkróki reyndust 21 túberkúlínpósitív, af 22 ung-
lingaskólanemendum 4 túberkúlínpósitívir. Berklalæknir skyggndi á
annað hundrað manns, er hann var hér á ferð.
Hofsós. Eftir alllöng og' náin kynni af héraðsbúum hef ég komizt að
raun um, að blessunarlega litið sé um þenna sjúkdóm í liéraðinu.
Ólafsjj. Berklapróf gert á öllum skólabörnum. Af börnum, sem voru
-j- nú í fyrsta sinn, eru líkindi til, að þau hafi smitazt af 2 sjúkling-
um. Hafði annar verið á hæli, en ekki fengizt til að fara neitt aftur,
er honum versnaði. Hinn var að mestu heiina, þar sem erfiðleikar
voru með hælispláss. Eins og að undanförnu var ekkert barn smitað
á farskólanum á Kleifum.
Svarfdæla. Ástandið í berklamálunum mjög svipað og undanfarin
ár. Eftirlitið með veilum nokkrum erfiðleikum bundið sakir fjar-
lægðar berklavarnarstöðvarinnar á Akureyri. Vill Ienda í undandrætti
að fara á tilsettum tíma til skoðunar o. fl. þess háttar.
Höfðahverfis. Engir nýir sjúklingar á árinu. Af 42 skólabörnum,
sem berklaprófuð voru, var aðeins eitt pósitívt, en það er hingað að-
flutt fyrir 2 árum.
1) Hér greindum tölum um niðurstöður berkluprófa virðist ekki bera nákvæm-
lega saman við sérstaka berklaprófsskýrsiu héraðslæknis, sbr. töflu XI.