Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1943, Side 53
51
Reykdæla. Virðist algerlega útrýmt í bili.
Þistilff. Sjúklingur með tbc.-j- í sputum var heimsendur fyrirvara-
íaust af Kristnesi. 2 drengir í Þórshöfn urðu jálcvæðir við berklapróf
« árinu. Annar smitaðist af fóstursystur sinni, sem var send með smit-
andi berklaveiki til Seyðisfjarðar; síðar til Vífilsstaða og dó þar.
Kkki er vitað, hvar hinn drengurinn smitaðist.
Fljótsdals. Þ. E.-son, 15 ára, hafði verið kirtlaveikur í æsku, og við
berklapróf reynzt -þ, en verið vel hraustur síðari ár. Faðir hans, til
heimilis í Vopnafirði, dó úr lungnaberklum. Þ. veiktist í aprílmánuði,
dvaldi þá í Eiðaskóla, og þótti þá þegar sýnt, að um lungnaberkla
væri að ræða, og honum tryggð vist á Kristnesi. En meðan hann beið
°ftir skipsferð norður, var hann fluttur heim og einangraður þar.
- börn voru á heimilinu, og höfðu þau ströng fyrirmæli um að koina
ekki inn til Þ. Það hafði þó orðið einu sinni, að sögn foreldra. Þ. fór
svo á Kristnes. En skömrnu síðar í júníbyrjun veiktust bæði börnin
samtímis, 7 ára telpa af erythema nodosum, sem batnaði á nokkrum
vikum, og 11 ára drengur af berklum í hiluseitlum. Honum batnaðí
ekki, og var hann sendur í Seyðisfjarðarspítala.
Seyðisff. Túberkúlínpróf var gert á öllum börnum, sem til náðist.
Norðff. Berklaveikin breytingarlítil i héraðinu. Virðast vera litlir
smitunarmöguleikar innan héraðs.
Beruff. Pirquetpróf var gert á öllum skólabörnum á Djúpavogi í
sambandi AÚð skólaskoðun, og reyndust öll
Hornaff. 59 ára bóndi úr Lóni dó á Landsspítalanum úr tbc.
abdominis.
Mýrdals. Stúlka, 26 ára g'ömul, sem var búin að liggja lengi i tbc.
salp. & intest., fékk mildar garnablæðingar og andaðist.
Vestmannaeyja. Brögð voru nokkur að nýsmitunum, en með miklu
erfiði og' fyrirhöfn hefur hafzt upp á smitvöldum og' þeim komið á Víf-
ilsstaði, nema 1 karlmanni, sem enn þrjózkaðist við að fara þangað.
Hefur góð húsakynni og býr á afskekktum stað og gætir varúðar, og
engar nýsmitanir til hans raktar upp á síðkastið. Berklaprófin gera
ómetanlegt gagn í varnarbaráttunni gegn berklaveikinni.
Eyrarbakka. Mun færri sjúklingar skráðir nú en í fyrra. Engin
heilaberklabólga. Berklapróf ekki gerð sakir efnisskorts, enda liefði
mér með engu móti unnizt tími til að gera Manteaux-próf, en þau
tiðkast nú mest og þykja nákvæmust.
Keflavikur. Um sumarið gerði berklayfirlæknir berklarannsókn
(skyggningu og berklapróf) á öllum íbúum Keflavíkur og Njarðvíkur,
ca. 1800 manns. Var þetta nauðsynleg't verk og gott til þess að fá yfir-
iit og leita að uppsprettulindum veikinnar. Nokkur ný berklatilfelli
höfðu komið fyrir fyrra part ársins, og fannst smitunaruppruni þeirra
flestra. Seinna part ársins veiktist aðfluttur maður af smitandi
lungnaberklum. Hafði legið ca. 3 vikur, að hann taldi í kvefi, en
i'eyndist strax við læknisskoðun og smásjárrannsókn á hráka að vera
nieð lungnaberkla. Hafði hann þá sinitað 3 börn á heimilinu, sein áður
voru Pirquet -4-. Var þegar fluttur á Vífilsstaði.