Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1943, Qupperneq 56
54
sjá um, að þeir séu geymdir, meðan eigendur þeirra biða afgreiðslu.“
Kaupfélag Hvammsfjarðar í Búðardal kom sér síðan upp sliku skýli,
og sá um, að menn geymdu þar hunda sína, meðan á slátrun stóð.
Mæltist þetta yfirieitt vel fyrir og var til mikilla bóta. Eitthvað svipað
mun hafa verið gert á Salthólmavik.
Hóls. Engin sullaveiki.
ísafí. Roskin kona frá Bolungarvík var skorin upp vegna lifrar-
sulls á sjúkrahúsinu hér.
Miðfi. Vegna hundapestar fórst hundahreinsun fyrir á síðast liðnu
ári. Fannst áberandi mikið af sullum í sláturfé, og lét ég þvi fram
fara hundahreinsun tvisvar á þessu ári.
Blönduós. Fannst í 48 ára gömlum manni. Sullurinn var í hægra
lifrarhluta ofan til, kalkaður, og þurfti að fara í gegnum brjósthimn-
una til þess að komast að honum. Sjúklingurinn var sendur til
Reykjavíkur og kom heim, að aflokinni aðgerð þar. Hefur gengið til
mín síðan, en er enn ineð opinn fistil í árslok.
Iiöfðahverfis. Hef ekki orðið hennar var í héraðinu. Hundar hreins-
aðir vor og haust eftir sláturtíð. Nokkur brögð voru að sollnu fé í
liaust, er slátrað var í sláturhúsinu hér. Sullir teknir og' grafnir, en
aldrei er öruggt, að hundar geti ekki náð í sull, þótt allrar varúðar
sé gætt.
Vopnafj. Hundahreinsun einu sinni á ári framkvæmd samvizlcu-
samlega. Sulla í sauðfé verður lítið vart, annarra en netjasulla litils
háttar.
Vestmannaeyja. Enga séð og ekki sett á mánaðarskrár af liinuin
læknunum. Heyrt getið um konu héðan um fimmtugt, sem lögð var
á Landsspítalann í haust og skorin þar upp vegna kalkaðs lifrar-
sulls. Sullir brenndir, ef þeir finnast, þegar slátrað er.
6. Geitur (favus).
Töflur V—VI.
Sjúklingafjöldi 1934—1943:
1934 1935 1936 1937 1938 1939 1940 1941 1942 1943
Sjúkl........ 5 2 1 3 7 3 2 2 „ 1
Læknar láta þessa getið:
Rvik. Geitur reyndist hafa kona um sextugt, er hafði átt heima
hér í bænum, svo að áratugum skipti. Hún hafði veikzt sein unglingur
austur í Grímsnesi og verið tekin til meðferðar með gömlu aðferðinni
af héraðslækni sinum, en ekki tekizt að uppræta sjúkdóminn. Til þess
að leyna honum gekk hún með skuplu. Það var fyrir tilviljun, að
læknir hennar komst að því, að hún hafði þennan sjúkdóm. Hún féll
á hálku og skarst allmikið á höfði. Þegar sárið var gróið, var hún
send á Röntgendeild Landsspítalans til lækninga.
Skipaskaga. Ekki orðið vart.
Borgarnes. Geitur hef ég ekki séð.
Reykdæla. 1 tilfelli skráð á mánaðarskrá, en sjúkdómsgreining
reyndist röng.