Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1943, Page 57
7. Kláði (scabies).
Töflur V, VI og VII, 4.
S'júklingafföldi 1934—1943:
1934 1935 1936 1937 1938 1939 1940 1941 1942 1943
Sjúkl......... 198 249 328 455 743 910 1531 1569 828 645
Úr kláða virðist aftur vera tekið að draga.
Læknar láta þessa getið:
Rvík. Hefur sem betur fer farið minnkandi í bænum 2 síðustu árin.
Flestir voru sjúklingarnir í september. \Tirðist eðlilegast að setja það
í samband við komu barna heim úr sveitunum.
Skipaskagn. Verður ekki vart við skólaskoðun og yfirleitt litið um
veikina.
Borgarfí. Kláða sá ég ekki á árinu.
Dala. Kláði varð rakinn til sundnámskeiðs í Hörðadalslaug.
Bíldudals. Alltaf nokkur tilfelli á hverju ári.
fsafí. Mikið bar á kláða, mest innan klæða, á lærum og kvið.
Hesteyrar. Fleiri en skráðir voru munu hafa leitað til ísafjarðar og
eru skrásettir þar.
Hólmavikur. Kemur fyrir enn. Berst stundum með vermönnum að
sunnan. Fæst tilfelli séð, en frétti af þessu, þegar komið er og beðið
um kláðasmyrsl.
Miðfí. Óvenjulega lítið borið á kláða þetta árið.
Blönduós. Stingur sér niður einstöku sinnum.
Ólafsfí. Mjög lítið bar á kláða á árinu.
Reykdæla. Smáfaraldur um vorið, en datt alveg niður.
Þistilfí. Fá tilfelli á árinu.
Vopnafí. Kláði er að verða héraðsplága. Virðist færast i aultana
þrátt fyrir alvarlega viðleitni héraðslæknisins og fólksins til þess að
útrýma honum. Síðast liðinn vetur rakst ég á grein um kláða í norsku
tímariti. Er þar talað um hreina kláðaplágu bæði í Noregi og Englandi.
Segir greinarhöfundur, að striðinu verði ekki um kennt, því að þessi
stórkostlegi kláðafaraldur hafi byrjað í Noregi og Englandi árið
1936 og síðan magnazt jafnt og þétt. Segir hann enn freinur, að vís-
indamenn geti enga fullnægjandi skýringu gefið á þessu fyrirbrigði.
Hér sé um eitt af þeim undarlegu fyrirbrigðum i náttúruimar ríki að
ræða, sem engin fullnægjandi skýring verði gefin á. Manni verður
því á að spyrja, hvort hér sé ekki um sömu pláguna að ræða og i
þessum nágrannalöndum okkar.
Fljótsdals. Ekki varð ég var við kláða á þessu ári. En undanfarin
ár hefur hann af og til borizt i héraðið frá Reyðarfirði, og setuliðinu
kennt um.
Seyðisfí. A þessum kvilla hefur þó borið nokkuð 2 síðustu árin,
og efalaust er hann ekki upprættur, þó að með köflum beri lítið á
honum. Fólki finnst mesta hneisa að heyra kláða nefndan, og leynist
hann því efalaust meira en vera ber.
Norðfí. Er viðloðandi í kaupstaðnum, en lítið útbreiddur.