Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1943, Side 60
58
heilablóðfall og veslaðist upp. Kona úr Reykjavík með ca. mammae
recidivans.
Bildudals. Gömul kona dó úr ca. ventriculi et hepatis, og önnur
kona, sem dó úr pneumonia crouposa, var einnig með ca. ventriculi.
Þingeyrar. Úr krabbameini dóu á árinu 5 manns, 3 úr ca. ventri-
culi, 1 úr ca. oesophagi og' 1 úr ca. maminae. Aldur 56—81 ár.
Er þetta óvanalega há tala af völdum krabbameins. Virðist fara ört
vaxandi á síðustu árum.
Flatcyrar. Ein öldruð kona andaðist úr ca. ventriculi.
Isafí. Af 9 skráðum tilfellum á árinu var aðeins í úr héraðinu
(Hnífsdal).
Ögur. Kona með ca. inammae. Grunsamlegt tilfelli: Kona 65 ára
dó af „gulu og uppköstum“, að sögn fólks. Talin á dánarskrá prests
dáin úr ellikröm.
Hesteyrar. 1 sjiiklingur yfir nirætt.
Hólmavikur. 2 dóu á árinu.
Miðfí. 2 sjúklingar dóu á árinu, báðir úr ca. mammae. Enginn
nýr skráður á árinu.
Blönduós. Krabbamein höfðu 5 manns og dóu allir, þar af liöfðu 3
meinið í maga, einn í vélinda, og einn með illkynjuð æxli í nýra.
Sauðúrkróks. A árinu dóu 5 úr ca. ventriculi og 1 úr ca. uteri.
Hofsós. 3 sjúklingar, allt gamlir menn, hafa látizt úr cancer, og
maður um fimmtugt úr sarcoma.
Ólafsfí. Karlmaður með ca. ventriculi dó á fyrra hluta ársins.
Kona var skráð með sarcoma orbitae.
Svarfdæla. 1 nýtt tilfelli á árinu, ca. laryngis, og 1 sjúklingur dó úr
ca. ventriculi.
Höfðalwerfis. Aldraður maður með ca. hepatis lézt skömmu fyrir
nýár.
Reykdæla. Ivona 65 ára með ea. intestini skorin. l)ó. Maður 43 ára
með ca. ventriculi skorinn.
Þistilfí. Ekkert dauðsfall innan héraðs.
Vopnafí. Varð ekki vart á þessu ári. Geta má þó þess, að til mín kom
á árinu gamall maður, sem haft hefur ulcus rodens utan vinstra
munnviks. Hefur hann tvívegis verið á Landsspítalanum til geisla-
lækninga. Sárið hefur þó ekki viljað gróa alveg, svo að á síðast liðnu
ári, þ. e. 1944, var gerð á Landsspítalanum excisio á sárinu, og' hefur
það ekki tekið sig upp síðan, svo að mér sé kunnugt.
Fljótsdals. Maður á sextugsaldri með magakrabba. Dó á árinu.
Seyðisfí. 79 ára karlmaður með ca. oesophagi dó heima. 69 ára ekkja
hafði í. mörg ár haft æxli við hægra kjálkabarð, og fór það skyndi-
lega að vaxa. Leitaði sjúklingurinn þá fyrst til læknis, og var æxlið
þegar numið burtu. Vefjarannsókn sýndi cancervef. Sjúklingurinn
sendur til Reykjavíkur til geislunar. Ekki tekið sig upp enn.
Norðfí. 2 krabbameinssjúklingar, sem dóu báðir á árinu. Annar dó
í heimahúsum eftir skamma legu úr lifrarkrabba, en hinn kom aðeins
við hjá mér í Reykjavíkurferðinni.
Fáskrúðsfí. öldruð kona dó úr ca. ventriculi (ekki getið á mán-
aðarskrá).