Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1943, Qupperneq 61
59
Berufi. 1 sjúklingur mun hafa dáið úr ca. intestini. 82 ára gamall
maður féll niður við skráningu í desember. Hann hafði verið maga-
veikur árum saman. Þegar ég sá hann, var hann lagztur í rúmið og
hættur að geta neytt nema fljótandi fæðu. Lifði þó árið út.
Mýrdals. Bóndi 46 ára, sem aldrei hafði kennt magaveiki, fékk
skyndilega mikla haematemesis. Fór á Landsspítalann, en revndist
vera með ca. ventricuii inoperabilis. Dó nokkru eftir heimkomu.
Grimsnes. 2 menn með ca. ventriculi, báðir dánir í árslok. Kona
með ca. mammae skorin upp i Reykjavík rétt fyrir áramót.
Keflavikur. Noklcur lilfelli af krabbameini i maga, flest aldrað
fólk, sem dó úr veikinni.
í). Drvkkjuæði (delirium tremens).
Töflur V—VI.
S júklingajjöldi 1934—1943:
1934 1935 1936 1937 1938 1939 1940 1941 1942 1943
Sjúkl........ 6 5 1 2 „ 1 2 2 „ 3
Læknar iáta þessa getið:
Hafnarfi. Enginn tilfærður, en eru sjálfsagt einhverjir til.
Borgarnes. 1 sjúklingur, oftar en einu sinni (ekki skráður).
Blönduós. Drykkjuæði hef ég aldrei séð hér, enda gefa menn sér
ekki tíma til að liggja í ölvun, þótt sumir g'usi í sig, þegar sérstakt
tækifæri er fyrir hendi, að þeirra áliti.
r
C. Ymsir sjúkdómar.
1. Algengustu kvillar.
Hafnarfj. Algengustu sjúkdómar, sem fólk kvartar um, eru blóð-
leysi, meltingartruflanir, gigt, taugaveiklun, höfuðverkur o. s. frv.
Annars virðist fólk yfirleitt vera mjög kvartsárt og kvarta oft um lítið
og óverulegt.
Borgarfj. Algengustu kvillar, auk farsótta, voru tannskemmdir, slys,
gigt, bólgur og igerðir, taugaveiklun.
Borgarnes. Tíðustu sjúkdómar, auk farsótta, eru tannskemmdir,
slys, gigt, húðsjúkdómar, blóðskortur með sleni og alls konar ígerðir.
Dala. Algengustu kvillar tannskemmdir, gigt í ýmsum myndum,
meltingarkvillar og taugaveiklun.
Bíldudals. Mest ber á tannskemmdum, blóðleysi, gigt í ýmsum
myndum, taugaveiklun og farsóttum.
Flategrar. AJgengustu kvillar eru tannskemmdir, gigt, meltingar
truflanir, blóðleysi og fleiri slíkir hrörnunarkvillar, t. d. eczema, og
liðbólgur.
Hólmavikur. Tannskennndir, meltingartruflanir, vöðva- og tauga-
gigt, ýmsir húðkvillar, smáslys og' blóðleysi.
Miðfj. Auk farsótta bar mikið á tannskemmdum, tauga- og gigtar-
sjúkdómum.