Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1943, Page 63
(51
3. Anaemia simplex.
Dala. Algengt er, að íolk, einkum kvenfólk, kvarti um slappleika
og telji sjálfu sér trú um, að það stafi af „blóðleysi“; við athugun
reynist það sjaldan rétt (hgbl. 70—80%). Hef aðeins rekizt á 4 til-
felli, sem kalla má anaemia.
4. Apoplexia cerebri.
Patreksfj. Stúlka, rösklega tvítug, dó úr apoplexia cerebri; systkini
hennar, að einu undan teknu, hafa dáið úr sama kvilla á unga aldri.
Ögur. 1 sjúklingur.
Miðfj. Systur, 23 og 30 ára, fengu því sem næst samtímis haemorr-
hagia cerebri. í ætt þeirra ber mikið á þessum sjúkdómi þegar á
unga aldri.
Vopnafj. 1 sjúklingur.
5. Appendicitis.
Hafnarfj. 54 sjúklingar voru skornir upp hér á sjúkrahúsinu vegna
botnlangabólgu, og voru margir þeirra aðsendir.
Borgarnes. Appendicitis acuta 9, appendicitis chronica 3.
Dala. 1 sjúklingur skráður. Dó (sjá síðar um ferðalög og hand-
læknisaðgerðir í heimahúsum). Vegna 9 ára gamals drengs var leitað
iil nágrannalæknis í síma, því að ekki náðist til mín. Batnaði í bili,
en mun siðan hafa verið fluttur til Reykjavíkur til aðgerðar. 22 ára
gömul stúlka frá Búðardal, til heimilis í Reykjavík, skorin upp á
Landakotsspítala og dó þar.
Ögur. 5 sjúklingar. 3 fóru til operationar á ísafjörð, en 2 grunaðir
eru enn óteknir.
Blönduós. Enn sem fyrr tiltölulega mjög' algengur sjúkdómur hér,
því að 30 botnlangaskurðir voru gerðir á árinu, þar af 9 í kasti, en
að þessu sinni var enginn sprunginn, en 2 með drepi. Af þessum
sjúklingum eru 5 utan héraðs. Botnlangabólga alltíð hjá börnum hér.
Ólafsfj. 4 sjúklingar skráðir.
Höfðahverfis. 3 tilfelli, eitt þeirra slæmt. Allir sjúklingarnir hafa
verið losaðir við botnlangann.
Vopnafj. Appendicitis acuta 2.
Fljótsdals. Virðist heldur fara í vöxt hin síðari ár. Þeir, sem veikj-
ast, fara undantekningarlítið til uppskurðar.
Berufj. 3 sjúklingar.
Mýrdats. 2 sjúklingar.
Grímsnes. Er enn sem fyrr algengur sjúkdómur. Flestir sjúkling-
arnir skornir í Reylcjavík.
6. Asthma bronchiale.
Dala. 1 sjúklingur.
Ólafsfj. 3 sjúklingar.
7. Avitaminosis.
Hafnarfj. Talsvert ber hér á beinkröm, og mörg stálpuð börn hef
ég séð liér með beinaskekkjur af hennar völdum. Aðra vaneldiskvilla
hef ég ekki orðið var við eða heyrt tilnefnda.