Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1943, Síða 66
64
Blönduós. Kemur stundum fyrir, aðallega á haustin. Ég nota eink-
um við það propylalcoholbakstra.
Fljótsdals. Mjög algengur kvilli í hverri sláturtíð.
Seyðisfi. Með langminnsta móti.
Fáskrú&sfi. Kom fyrir í nokkrum tilfellum.
Vestmannaeijja. Nokkur tilfelli, eins og vant er frá hráæti í fisk-
beinum og eins í sláturtíð.
17. Erythema multiforme.
Sauðárkróks. 2 sjúklinga sá ég á árinu með erythema multiforme.
Minnist ég' ekki að hafa séð það áður, en taldi diagnosis nokkurn
veginn vissa.
18. Furunculosis, panaritia etc.
Borgarnes. Abcessus 17. Panaritia 13. Epulis 4. Furunculosis 17.
Lymphangitis 2. Erysipelas 1.
Dala. Panaritia 2, furunculosis 4, abscessus 2.
Flateijrar. Fékk aðeins 12 tilfelli til meðferðar, öli mild.
Ögur. Fingurmein 5, sogæðabólga 2, æðabólga í fótum 1, abscessus
ad rimam ani 1.
Hólmavíkur. Fingurmein ekki óalgeng á sjómönnum, og fylgir oft
sogæðabólga.
Ólafsfj. Mjög lítið um fingurmein, aðeins 5 sjúklingar, og eitt mjög
slæmt. Kýli höfðu 15.
Höfðahverfis. Panaritia með færra móti, eða 9, engin slæm, og
einnig minna um kýli og ígerðir.
Vopnafj. Panaritia 13. Furunculosis 14. Phlegmone 3. Smákaun 13.
Fljótsdals. Ef notað er Coopersduft við sauðfjárbaðanir, er algengt,
að menn fái þrálátar bólur og ígerðir út frá smáskeinum á höndum.
Fingurmein og' þess konar ígerðir álíka og vant er, og þó helzt sumar-
og haustmánuðina. Kýli eru fullt svo algeng á vetrum.
Norðfj. Smábólgur eru skráðar í 12 tilfellum. í seinni tíð virðast
fingurmein sjaldgæfari og meinlausari en oft áður. Ekki sætti ég mig'
við þá skýringu, að hreinlæti sé svo miklu meira, því að það kemst
illa að, þar sem fingurmeinin voru algengust (við verkun fisks á
sjó og á landi). Alþýða manna talar um misjafnlega „góðan sjó“
(hollan) frá ári til árs. Það virðist reyndar nokkuð bábiljukennt, en
oft hefur hugboð fólksins verið furðu hæfið, en vísindamennirnir ver-
ið „gáfaðir eftir á“. Ekki skal ég þó halda þessari skýringu fram.
Berufj. Panaritia 4. Abscessus mammae l.
Vestmannaeyja. Fingurmein og slæmar ígerðir, sem áður voru hér
algeng á vertíð, eru að verða sjaldgæfari, enda er hirða handa betri
en áður var, og fólk leitar yfirleitt fyrr lækna.
Grímsnes. Fingurmein og igerðir fremur fátíð.
19. Granuloma.
Borgarfj. 6 tilfelli.
Borgarnes. Granuloma 2.
Flateijrar. Aðeins 1 tilfelli í haust, en illkynja og langvinnt.
Sauðárkróks. Talsvert bar á granuloma eftir sláturtið, eins og
vant er.