Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1943, Blaðsíða 69
67
35. Tumores benigni.
Fljótsdals. 2 lipoma, bæði numin burtu.
Norðfi. 1 lipoma thoracis, 2 atheromata.
36. Urticaria.
Borgarnes. Urticaria 13.
Hólmavílcur. Kernur oft fyrir, einkum í pelabörnum, er fá fjólk úr
kúm, sem gefinn er fóðurbætir, aðallega síldarmjöl. Einnig ekki
sjaldan, að kaupstaðabörn útsteypast, er þau koma í sveitina.
Ólafsfj. Árlega nokkur tiifelli, einkum börn.
Höfðahverfis. Kemur fyrir öðru hverju, aigengari við sjóinn en í
sveitinni.
Fljótsdals. Nokkur tilfelli, aðallega í börnum, en líka í fullorðnum.
Fáskrúðsjj. Nokkur brögð hafa verið að þessum kvilla. Hefur batnað
vel við kalkgjöf.
37. Varices & ulcera cruris.
Borgarnes. Varicoceie 2. Haemorrhoides 6.
Dala. Leggjasár: 2 tilfelli. Varices: 5 tilfelli.
Hólmavikur. Tíður kvilli.
Höfðahverfis. 1 sjúklingur leitaði mín með ulcus cruris og' varices.
Fljótsdals. Fjöldi kvenna gengur með æðahúta á neðri útlimum.
Eg' hef reynt innspýtingar, og gefst vel í bráð, en vill taka sig upp aft-
ur eftir nokkur ár. Verra og vanþakklátara er að fást við þenna kvilla,
þegar honum fylgir eczeina og ulcera. Dugar þá sjaldan annað en löng
rúmlega, en konurnar tregar til þess, enda hafa þær sjaldnast tök
á því.
38. Vitium primae formationis.
Borgarfj. 2 börn sá ég með meðfædda galla (fædd árið áður), annað
með palatoschisis, hitt með morbus coendeus.
Borgarnes. Labium leporinuin 1.
D. Kvillar skólabarna.
Tafla X.
Skýrslur um skólaskoðanir hafa borizt úr öllum læknishéruðum
nenra 2 (Öxarfj. og Hróarstungu) og ná til 13638 barna.
Af þessum 13638 börnum voru 17 talin svo berklaveik við skoð-
unina, að þeim var vísað frá kennslu, þ. e. 1,2%,. Önnur 42, þ. e. 3,1 %c,
voru að vísu talin berklaveik, en leyfð skólavist.
Lús eða nit fannst í 160!) börnum, eða 11,8%, og kláði á 48 börnum
í 16 héruðum, ]). e. 3,5 %c. Geitur fundust ekki í neinu harni, svo að
getið sé.
Við skoðunina ráku læknar utan Reykjavíkur sig á 130 af 9566
börnum með ýmsa aðra nænia kvilia, þ. e. 1,4%. Skiptust kvillar
þeirra, sem hér segir: