Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1943, Síða 71
bann. Kvartað var yfir því hér í Borgarnesi, að börn kæmu heim með
his úr skólanum. Var þá gert skyndiáhlaup, en hvað sein veldur,
fannst lítið nýtt við þá skoðun, aðeins lús í einu barni. Nokkur þau,
sem helzt voru grunuð, virtust þó koma nýkembd, og minna var
kvartað á eftir.
Dala. (110 börn skoðuð.) Heilbrigði skólabarna yfirleitt góð. Helztu
kvillar: Gómeitlaauki 27, eitlaþroti á hálsi 40, vestigia rachitidis 4,
hryggskekkja 2, sjóngallar 2, húðkvillar 2, varices 1 (13 ára telpa).
Lúsin reynist þrálát. Hafði ég þó reynt að brýna fyrir aðstandendum
barnanna, svo og kennurum og fræðslunefndum i fyrra, að útrýma
þeim skolla. Að þessu sinni lét ég, auk þess söniu aðilum í té lyf,
sublímatedik, i því skyni.
Patrcksfi. (221 barn skoðað.) Börnin flest sæmilega frísk, og engu
þurfti að vísa úr skóla vegna veikinda.
Bildudals. (60 börn skoðuð.) Impetigo contagiosa 1, scoliosis 3,
hypertrophia tonsillarum 19, adenitis colli.4, catarrhus resp. ac. 4,
urticaria 2, atheroma 2, verrucae 2, eczema 1, acne 1, kryptorchismus
1, anaemia 2, myopia 4, astiginatismus 2, blepharitis 1, microoculi c.
niyopia 1. Annars voru börnin vel útlítandi.
Pingeijrar. Tannskemmdir eru, eins og jafnan áður, algengasti kvill-
inn. Við farskólann á Lambahlaði eru þær minnst áberandi. Hefur
svo verið áður. Hef ég veitt því eftirtekt, að börn frá 1 heimili, sem
voru laus við tannskemmdir, hafa misst tennur mjög ört, er þau
dvöldu hér í kauptúninu. T. d. var stúlka nokkur svo illa iit leikin
eftir 2 ára dvöl hér, að úr henni þúrfti að taka allar tennur. Mataræði
á sveitaheimilum var gamaldags íslenzkur matur, á kaupstaðarheim-
ilum venjulegt nútíinafæði. Ástæða fyrir þessum óvanalega öru
skemmdum gæti verið sú, að þeir, sem soltið hafa af sykri og hveiti,
væru fíknari í þær fæðutegundir en hinir, sem vanizt hafa þeim og
neyttu þeirra því fremur.
Flategrar. (163 börn skoðuð.) Á Flateyri litu börnin mjög vel út,
voru í góðum holdum, hraustleg, vel klædd og óþrif í fremur fáum,
eða tæplega 15%. Þau hafa og næga mjólk, nóg af garðávöxtum, mik-
ið af lýsi, lifur og hrognum. Þau hafa næga útivist og sólarljós, og
sund stunda þau flest öll á sumruni í hinni nýju sundlaug' þorpsins.
I Mosvallahreppi litu börnin einnig vel út og voru hraustleg, en iriun
meira var þar um óþrif, eða lús og nit í 30%. Virtist mér skorta
nokkuð á, að hirða suinra barnanna væri sem skyldi. f Súgandafirði
litu börnin yfirleitt illa út, einkum piltarnir. Voru þeir litlir, grannir
og óþrifalegir. Lús og nit voru í 49% barnanna. Virðist þar margt
leggjast á eitt til lélegs þroska ungviðisins, mjólkurskortur, alger
grænmetisskortur, mikið sólarleysi og hirðuleysi um dagfar barn-
anna. Einn forustumanna hreppsins sagði mér, að á götunni væru
börnin fram á nætur, og þar væru þau árla morguns, er hann kæmi á
fætur, og að því er virtist með saina skitnum, því að tími gæfist lítill
til þvotta, þegar seint væri til sængur gengið. Sólskýli er þarna, og
nota börnin það nokkuð og eins sundlaug litla, sem er skammt innan
við þorpið. Eitthvað mun rofa til á vorin eftir vetrarlanga baráttu
við lúsina í skólanum, en að hausti situr allt við sama, Scoliosis 12,