Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1943, Qupperneq 81
79
IV. Barnsfarir.
Töflur XII—XIV.
Á árinu fæddust samkvæmt tölum Hagstofunnar 3170 lifandi og
64 andvana börn.
Skýrslur ljósmæðra geta fæðinga 3095 barna og 60 fósturláta.
Getið er um aðburð 3090 barna, og var hnnn í hundraðstölnm,
sem hér segir:
Höfuð bar að:
Hvirfil 93,72 %
Framhöfuð 1,78 —
Andlit 0.23 — 95,73 %
Sitjanda og fætur bar að: Sitjanda 3,24
Fót 0,74 — 3,98 —
Þverlega ...................................... 0,29 —
64 af 3089 börnum eru talin fædd andvana, þ. e. 2,1 % — í Rvík 25
af 1265 (2,0%) — en hálfdauð við fæðinguna 53 (1,7%). Ófullburða
voru talin 119 af 3083 (3,9%). 7 börn voru vansköpuð (2,3%0).
Af barnsförum og úr barnsfararsótt hafa dáið undanfarinn áratug:
1934 1935 1936 1937 1938 1939 1940 1941 1942 1943
Af barnsförum 6 7 3 6 3 3 4 10 8 7
Or barnsfarars. 2 31 3 3 2 1 3 3 3
Samtals....... 8 10 4 9 6 5 5 13 11 10
í skýrslum lækna um fæðingaraðgerðir (tafla XIV) eru taldir þessir
fæðingarerfiðleikar helztir: Fyrirsæt fylgja (oftast partialis) 14, al-
varlega föst fylgja (losuð með hendi að innan) 9, blæðingar eftir burð
(varla alltaf mikils háttar) 27, fæðingarkrampar 3, grindarþrengsli
4, þverlega 6, framfallinn lækur 4, djúp þverstaða höfuðs 1 og
hydramnion 1.
A árinu fóru fram 46 fóstureyðingar samkvæmt lögum, og er gerð
grein fyrir þeim í töflu XII. Hér fer á eftir
Yfirlit
um þær fóstureyðingar (14 af 46 eða 30,4%), sem voru framkvæmdar
meðfram af félagslegum ástæðum.
Landsspitalinn.
1. 32 ára g. verzlunarfulltrúa í Reykjavík. Komin 8 vikur á leið.
3 fæðingar á 5 árum, 3 börn (13, 5 og' % árs) í umsjá konunnar.
Ibúð: 3 herbergi. Árstekjur: Kr. 5400,00 (grunnlaun).
S j ú k d ó m u r : Psychoneurosis depressiva.
Félagslegar ástæður: Berklaveiki á heimilinu. Hefur
sjálf tvívegis haft pleuritis. Eiginmaður og 1 barn þeirra berkla-
veikt. 1 barn dáið úr meningitis tuberculosa.