Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1943, Qupperneq 84
8 börn dóu rétt eftir fæðingu, flest ófullburða. Ura miðjan nóvember
kom upp skarlatssótt í fæðingardeild Landsspítalans. Veiktust 3 sæng-
urkonur af henni, og varð þetta til þess, að loka varð deildinni um
mánaðartíma.
Hafnarfi. Yfirsetukona tilfærir 1 konu með fósturlát, og í sjúkra-
húsinu er gerð evacuatio uteri á 3 konum vegna abortus incompletus.
Lækna vitjað sem næst til helmings þeirra kvenna, sem fætt hafa í
héraðinu (þó hafa sjálfsagt nokkrar hinna átt börn sín á fæðingar-
deild Landsspítalans).
Álafoss. 1 kona fæddi á Landsspítalanum. Var send heirn, þótt hún
væri með byrjandi phlebitis. Kona þessi lá lengi lieima, fékk
phlebitis í báða fætur, en batnaði.
Skipaskaga. Læknisaðgerðir nær eing'öngu deyfingar.
Borgarfj. Oftast vitjað til að herða á sótt eða deyfa. 1 tvíburafæðing.
1 kona hafði legið lengi um meðgöngutímann vegna æðabólgu.
Borgarnes. Kona hafði placenta praevia partialis. Mikil blæðing fyrir
burð og barnið andvana fætt, áður en ég kom þar að. Þá enn blæðing og
fylgja ókomin. Við pitúitrín fengust drættir í legið, og tókst siðan að ná
fylgjunni með Credé. Konan geðveik um tíma eftir fæðinguna. Hjá
annarri konu sitjandafæðing. Vatn fyrirrunnið, og heppnaðist ekki
að ná barninu í tangarfæri fyrr en svo seint, að það var dautt. Hjá
þriðju konunni fósturhljóð og hreyfingar horfnar fyrir nokkrum
dögum, þegar fæðing hófst. Pitúitrín og' svæfing. Dautt og rotið fóstur.
Tilefni annars lin sótt og ósk um deyfingu.
Dala. Tvisvar vitjað til sængurlcvenna, aðallega til að deyfa kon-
urnar. í annað skiptið örvaði ég hríðar lítils háttar í lok fæðingar
(pitúitrín), í hitt skiptið saumaði ég 2. stigs spangarsprungu.
Patreksfj. Læknis sjaldan vitjað, en í þau fáu skipti varð komizt
af án verulegra aðgerða.
Bíldudals. 6 sinniun vitjað til fa'ðandi kvenna vegna sóttleysis,
tvisvar vegna fastrar fylgju, einu sinni aðeins til þess að deyfa kon-
una og einu sinni veg’na þverlegu. Konan hafði verið mjög lasin um
meðgöngutímann. Þegar læknis var vitjað, hafði hún verið í fæðingu
á annan sólarhring og var mjög' slöpp. Sótt var lin, barnið var í þver-
legu, og' bar öxl aftanverða að. Ekki var líf heyranlegt með barninu.
Konan var síðan svæfð, gerð vending' og barnið dregið fram, en gekk
mjög erfiðlega að ná höfði niður úr grind. Varð að decapitera, og tókst
svo um síðir að ná höfðinu niður. Konunni heilsaðist furðanlega ve!
eftir þessa erfiðu aðgerð. Gefið var profýlaktiskt prontosíl. Ljósmæður
geta ekki um fósturlát, en lækni er kunnugt um 2.
Flateyrar. í eitt skipti placenta retenta, annars ekkert að nema
sóttleysi. Fósturlát 1.
Hóls. Fylgju þurfti að taka með hendi einu sinni. Hjá þessari sömu
konu var fylgja fast gróin við næstu fæðingu á undan.
ísafj. Keisaraskurðir 3, 2svar vegna grindarþrengsla og 1 sinni
vegna placenta praevia. Tangir 3 vegna sóttleysis. Öllum konunum
heilsaðist vel.
Ögur. Sóttur tvisvar vegna adyamia. í öðru tilfellinu fylgja nokkuð
föst og losnaði seint og með ca. 700—800 sm3 bæðingu. Credé.