Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1943, Side 85
83
2 fósturlát, annað })arf]iaðist ekki sérstakrar aðgerðar. Hitt sent til
ísafjarðar.
Hólmavíkur. Oftast vitjað til að herða sótt og deyfa.
Miðfj. Viðstaddur fæðingar aðallega til að deyfa eða herða á sótt.
2 fósturlát tekin til meðferðar í sjúkrahúsinu.
Blönduós. Barnsfarir stórviðburðalitlar. 1 konan þó alvarlega veik
um meðgöngutímann og var lögð inn á sjúkrahúsið, þar sem hún lá i
10 vikur, áður en hún varð léttari, og 2 vikur þar á eftir. Hún var með
polyneuritis í fótunum og hálflömuð, en auk þess með sykur í þvagi
til að byrja með. Engri konunni hlekktist neitt á. Fósturlát urðu 4
á árinu, þar af eitt á 6 mánaða fóstri.
Sauðárkróks. Venjulega var tilefuið, að kona óskaði deyfingar, eða
herða þurfti lítils háttar á hríðum. f eitt sinn var um að ræða sitjanda-
fæðingu hjá primipara. Var gerður framdráttur að lokuin, og fékk
konan ruptura perinei totalis, er var saumuð, en hafðist illa við, og'
varð konan að koma á sjúkrahús til aðgerðar síðar. 1 barn fæddist
andvana. Var það hjá 29 ára primipara. Fæðing gekk frekar seint,
en ekki kom til neinna aðgerða, nema hert var á hríðum með pitúi-
tríni. 1 kona fékk barnsfararsótt, 25 ára primipara. Fæðing gekk afar
fljótt, og mátti heita, að ekki væri á ltonunni snert.
Hofsós. Einu sinni föst fvlgja, ein blæðing' eftir fæðingu og einu
sinni töng vegna andlitsstöðu. Ljósmæður geta yfirleitt ekki fóstur-
láta, en fáein eru mér kunn.
Ölafsjj. Oftast hjá sængurkonum einungis til þess að deyfa kon-
urnar. Auk þess komu 2 fósturlát til minna kasta.
Svarfdæla. Engin kona dó af barnsförum, og börn lifðu öll. Var
sóttur til konu, 31 árs frumbyrju, sem komin var að því að fæða.
Hafði hún allmikinn bjúg, herpes gestationis og albuminuria, og var
lítill vafi á, að eclampsia væri á næstu grösum. Konan átti heima
uppi í sveit, og var því tæplega um annað að gera en koma henni í
sjúkrahús, áður en óveðrið skylli á, og var hún flutt í snatri í Akur-
eyrarsjúkrahús. Er hún hafði legið þar í nokkra daga, fékk hún barns-
fararkrampa á mjög háu stigi, svo að ekki var uni annað að ræða
en gera á henni keisaraskurð, sein og var gert, og náðust með þeim
hætti lifandi tvíburar. Lifa þeir enn báðir og móðirin lika, þótt lengi
væri tvísýnt um líf hennar.
Akureyrar. Eitthvað hefur verið um fósturlát á árinu eins og vant
er, en í engu tilfelli grunur urii ólöglega fóstureyðingu.
Höfðahverfis. 1 tvíburafæðing. Konan fékk blæðingu, ca. 2% mán-
uði áður en hún átti von á sér. Þrátt fyrir meðferð vildi hún ekki
slöðvast alveg, svo að fæðingin varð að hafa sinn g'ang. Fæddist fyrst
lifandi sveinbarn. Síðara barninu vent og dregið fram, og var það and-
vana. Að öðru leyti eðlilegar fæðingar. Fósturlát hafa orðið 6 á ár-
inu. Orsakir engar finnanlegar. Öllum konunum heilsaðist vel. Engin
kona leitað mín á árinu í þeim erindagerðum að vilja losna við fóstur,
né til þess að leita upplýsinga um takmarlcanir barneigna.
Húsavikur. Stærst meybarn 4500/57, minnst 1900/46 sm. Stærst
sveinbarn 5000/59, minnst 2000/47 sm. Ljósmæður geta eklti fóstur-
láta, en óvenju mörg' börn ófullburða. Þó veit ég um nokkur fóstur-