Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1943, Qupperneq 87
85
una (innvortis rannsókn), sagði, að allt væri í lagi og lýsti því ná-
kvæmlega, að höfuð bæri að o. s. frv. Fór síðan burt. Nvi gekk ekkert
hjá konunni, en ég var kominn heim og' var sóttur næstu nótt. Þetta
reyndist vera þverlega. Fósturhljóð heyrðust ekki. Ég gerði vendingu
og framdrátt. Barnið andvana, fylgjan sýndi sig að vera placenta
praevia marginata. Konunni heilsaðist vel. (Þeir gera ekki allt bezt í
Ameríkunni — G(uð fyrirgefi mér að gorta.).
Vestmannaeyja. Sectio caesarea gerð á konu, 35 ára fjölbyrju, vegna
grindarþrengsla, og á annari, 30 ára, vegna placenta praevia. Heils-
aðist vel. Ljósmæður geta þessa: Fósturlát vegna fyrirsætrar fylgju.
Annars telja konur þreytu, þvotta, ofreynslu og ferðalag tíðast or-
sakir, að þær missa fangs. Annars skal þess getið, að einstaka konur
hafa tröllatrú á blóðbergi til þess að losa um fóstur, fá þær af því
uppsölu og niðurgang, og má þá vera, að losni um fóstur.
Eijrarbakka. Á þessu ári var ég ekki viðstaddur neitt fósturlát, sem
grunsamlegt væri, að því leyti að vera viljaverk manna. Mér bárust
heldur ekki nein tilmæli um að losa fijóð við fóstur. Hin almenna
velmegun mun eiga sinn þált í því, að stúlkurnar sækja það nú ekki
eins fast og áður að losna við „ávöxt ástarinnar". Eg kom til stúlku
einnar, sem hafði nokkurn vott af thromboplebitis femoralis. Það kom
upp úr kafinu, eftir noklcrar stunur og stam, að hún væri nýlega
komin úr Reykjavík eftir útsköfun, eða „ketilhreinsun", eins og það
mun nú vera nefnt meðal ungra manna og — kvenna líklega líka.
Sú útsköfun hafði ekki verið framkvæmd samlcvæmt lögum þeim, sem
þar um gilda, og virtist sýnt, að stúlkan hefði hlotið sjúkdóm þenna
af aðgerðinni.1) En hvað um það — „afleiðingarnar“ losnaði hún við,
og eins og hinn ágæti Holberg segir á einum stað: „Ja, vel döde han,
men Feberen derimod forlod ham ganske.“ Stúlkan dó nú reyndar
ekki, en var lengi að ná sér, og hef ég raunar ástæðu lil að ætla, að
mikið skorti á, að hún sé jafngóð enn. Um það veit ég þó ekki með
fullri vissn, því að hún á ekki heima í mínu héraði.
Grímsnes. III-para dó af blæðingu milli barns og fylgju. Konan
átti heima austur í Þjórsárdal, og náði ég ekki í tæka tíð til þess að
taka fylgjuna vegna fjarlægðar og ófærðar. Önnur tilefni lélegar
hríðir. Fósturlát 4 eða 5. Einu sinni gerð evacuatio uteri vegna abortus
incompletus. Önnur kona send á Landsspítalann vegna mola liydati-
dosa þriggja mánaða. Abortus provocatus ekki gerður, ekki heldur
farið fram á slíkt.
Keflavíkur. 2 hættulegar blæðingar vegna fósturláta komu fyrir.
í fyrra skipti varð héraðslæknir að gera útsköfun i heimahúsum, en
hina konuna þurfti að flytja á sjúkrahús af sömu ástæðum. Yfirleitt
vantar fósturlát á skýrslur ljósmæðra. A árinu eru að minnsta kosti
4 fósturlát, sem ekki eru á skýrslum, en héraðslæknir veit um.
1) Héraðslækniriim var árangurslaust krafinn nánari sagna Jæssu til stað
fcstingar.