Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1943, Qupperneq 91
89
femoris 1, costae 3, epicondyli humeri 1. Infractio capituli radii 1.
Commotio cerebri 2. Combustiones 3. Contusiones 10. Vulnera 12.
Maður missti IV2 köggul framan af hægra vísifingri á þann hátt, að
trippi beit hann, þegar hann var að reyna að heizla það.
Blönduós. Fimmtugur bóndi, ókvæntur, slcaut sig af ásettu ráði
gegnum hjartað, og lcona varð fyrir árekstri af bíl og meiddist mjög
hættulega. Hún var á gangi á dimmum vegi rétt ofan við Skagastrand-
arkauptún, en á vörubifreið, sem mætti henni; voru vatnsleiðslupípur,
er höfðu staðið út af bílpallinum, og rakst endi einnar þeirra fyrir
hrjóst konunni, braut stykki úr brjóstbeininu hægra megin og að-
hggjandi geislunga, svo að búðin yfir brotstaðnum blakti til við öndun.
Lá alllengi í sjúkrahúsinu, en komst að lokum til sæmilegrar heilsu.
Bóndi einn frammi í sveit féll úr heystáli, og rakst við það beynál
gegnum kálfa hans upp fyrir agnbald. Maðurinn, sem er mesta hörku-
tól, reyndi að ná nálinni, en tókst það ekki. Þó liafði hann sorfið hana
sundur, er ég kom, svo að ekki þurfti annað en að reka liana áfram
ut úr skinninu, og varð maðurinn jafngóður. Af öðrum slysum má
nefna: Framhandleggsbrot beggja beina á barni, geislabeinsbrot á
karlmanni, viðbeinsbrot á barni, liðhlaup um olnboga á konu og ann-
að út á hlið á barni, opin fingurbrot á 2 mönnum, liðatognanir í 5
skipti, sár i 19 skipti, bruni 3 sinnum.
Sauðárkróks. Slys flest smá. Hin helztu voru: Lux. radii perannu-
laris 1. Bóndi var að fitla við gamla patrónu, er sprakk í höndum
hans. Slapp hann með marðar hendur og' sár og fékk auk þess opna
lux. pollicis. Greri vel. Fract. costae 5, condyli humeri 1, antibrachii 2,
i’adii 1, phalangis digiti I 1, colli femoris 1 (gamall maður rann til í
sleipum g'angi og datt), cruris 1, malleoli externi 3, oss. metatarsi et
cuneiform. 1 — bíll rann til á hálku og renndi upp á húshlið, urðu þar
fyrir honum 2 drengir, og dó annar þeirra samstundis, hafði fengið
opið brot á bauskúpu, fract. columnae, lux. femoris iliaca og fleiri
áverka. Hinn fékk aðeins contusio abdominis og virtist jafngóður
eftir nokkra daga.
Hofsós. Um slysfarir ekki mikið þetta ár, nema smávegis sár og
tognanir. Combustiones II. gr. 2. Fract. antibrachii 1, femoris 1. Lux.
humeri 1. Maður varð úti í stórhlíð milli bæja.
Ólafsjj. Nokkuð mörg slys, en flest lítils háttar. Fract. fexnoris 1
(barn), claviculae 1, costarum 2. Lux. claviculae acromialis 1. Vuln.
incisa 17, contusa 13 (þar af einn drengur, sem varð undir bíl, er tók
aftur á bak), sclopetaria 1 (drengir um fermingu voru að koma að
landi í árabát, en hlaðin haglabyssa lá í skutnum; þegar einn þeirra
fór upp úr bátnum, mun liann hafa komið við gikkinn, og skotið reið
af; kom það í utan- og ofanverðan framhandlegg, og tættust vöðvar
sundur), punctum 1, dilacerata 14. Corpus alienum corneae 1, con-
junctivae 3 (þar af eitt lilfelli, er varð á þann liátt, að drengur gusaði
pipar í augu annars), manum 2 (önglar), nasi 1 (krakki tróð bréfi
í nös). Distorsiones 7. Comustiones I. et II. grad. 6. Morsus canis 1.
Eitt slys varð með því móti, að maður var að saga sundur frosinn
sviðahaus. Var lítil telpa að vappa þar hjá og fór með hönd fyrir sög-
ina, svo að fremsti köggull litla fingurs sagaðist af.
12