Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1943, Blaðsíða 102
100
störf 16. Auk læknanna eru 22 læknakandídatar, sem eiga ófengið
lækningaleyfi. íslenzkir læknar, sem búsettir eru erlendis og ekki hafa
lækningaleyfi hér á iandi, eru 7.
Tannlæknar, sem reka tannlækningastofur, teljast 13 (þar af 1
læknir). íslenzkir tannlæknakandídatar, sem eiga ófengið tannlækn-
ingaleyfi, eru 8 og flestir enn erlendis.
Á læknaskipun urðu eftirfarandi breytingar:
Ari Jónsson, héraðslæknir í F1 jótsdalshéraði, og Einar Ástráðsson,
héraðslæknir i Eskifjarðarhéraði, settir 30. janúar til að gegna sam-
eiginlega Hróarsturiguhéraði ásamt sínum héruðum frá 1. febrúar að
lelja. — Ragnar Ásgeirsson, héraðslæknir í Reykjarfjarðarhéraði,
skipaður 18. marz héraðslæknir í FJateyrarhéraði frá 1. apríl að telja.
— Valtýr H. Valtýsson, héraðslæknir í Hólmavíkurhéraði, settur 7. apríl
frá 1. sama mánaðar og aftur 11. okt. frá 1. sama mánaðar að telja til að
gegna Reykjarfjarðarhéraði ásamt sínu liéraði. — Skarphéðinn Þor-
kelsson, héraðslæknir í Hesteyrarhéraði, skipaður 30. júní héraðs-
læknir í Hornafjarðarhéraði frá 1. júlí að telja. — Sigmundur Jóns-
son, cand. med & chir., settur 1. júlí héraðslæknir í Reykjarfjarðar-
héraði frá sama degi að telja. - - Baldur Johnsen, héraðslæknir í ísa-
fjarðarhéraði, settur 14. júlí til þessaðgegna Hesteyrarhéraði ásamt sínu
héraði frá 1. sama mánaðar að telja. — IngóLfur Gíslason, fyrrverandi
liéraðslæknir, ráðinn 22. júlí til þess að gegna læknisstörfum á Raufar-
höfn um síldveiðitímann. — Haraldur Jónsson, héraðslæknir í Mýrdals-
héraði, settur 26. júlí til þess að gegna Síðuhéraði ásamt sínu
héraði. — Ráðning Lárusar Jónssonar, læknis á Siglufirði, til þess að
vera aðstoðarlæknir héraðslæknis í Sauðárkrókshéraði frá 1. septem-
ber að telja staðfest 23. sama mánaðar. — Guðmundur Guðmundsson,
fyrrverandi héraðslæknir, settur 28. se|)tember staðgöngumaður hér-
aðslæknisins í Ólafsvíkurhéraði frá 1. oklóber að telja. — Ólafur
Tryggvason, cand. med. & chir., settur 5. október frá 1. sama mán-
aðar að telja og skipaður 16. desember frá 15. sama mánaðar að telja
héraðslæknir í Síðuhéraði. — Ráðning Ragnars Sigurðssonar, cand.
med. & chir., til þess að vera aðstoðarlæknir héraðslæknis í Þing-
eyrarhéraði frá 15. júní að tel ja staðfest 13. október.
1. Almenn lækningaleyfi:
Ólafur Tryggvason (9. des.).
2. Sérfræðingar:
Oddur Ólafsson í berklalækningum (8. növ.).
3. Takmörkuð lækningaleyfi:
Tannlækningar:
Guðrún Pálsdóttir (13. okt.).
Tannsmíð:
Guðmundur Á. Hraundal, á Hvamsstanga og Hölmavík % mánuð
á hvorum stað (9. ág. og 7. sept.).
Læknar láta þessa getið:
Borgarnes. Sótthreinsunarmenn munu ekki vera skipaðir í öllum
hreppum héraðsins, og verður það tekið til nánari athugunar á þessu
ári.