Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1943, Page 103
101
Patreksfj. Læknaskipti urðu um síðuslu áramót, þegar Árni B. P.
Helgason lét af héraðslæknisstörfum vegna vanheilsu. Siðan hef ég
gegnt héraðinu, nema hvað Ragnar Sigurðsson cand. med. hefur verið
staðgöngumaður minn, bæði. þegar ég var í sumarfríi og eins, meðan
ég yar í gistivist í Landsspítalanum, alls um 2 mánuði.
Ogur. Læknaskipti urðu, og settist núverandi læknir í embættið þ.
11. janúar. Héraðslæknir var kvaddur af sýslumanni til fundar á ísa-
Hrði seint í janúar. Komu þangað allir læknar sýslunnar, og samdi
Uindurinn greinargerð fyrir nýrri skiptingu sýslunnar í ljósmóður-
uindæmi, að henni skyldi allri skipt í 4 umdæmi; Ögurhéraði í 2 með
aðsetri í Súðavík og Reykjanesi, en Snæfjallahreppur skyldi mega
sækja ljósmóður á hvorn staðinn, sem betur hentaði í hvert skipti,
og skyldu í starfann fengnar, ef kostur væri, ljósmæður með auka-
menntun í hjúkrun, og væru þær jafnframt skólahjúkrunarkonur.
Laun skyldu vera hærri en nú er, eða 200 kr. grunnlaun á mánuði
fyrir sameinað starf auk uppbóta. Sýslufundur hafnaði þessum til-
lögum með 5 atkvæðum gegn 4. Ég álít, að aðsetursstaður læknis
Ögurhéraðs eigi að vera í Reykjanesi, setja eigi líka Ijósmóður þar á
laggirnar, og leggja eigi þrenningunni, skóla, lækni og ljósmóður, til
vélhát og vélstjóra fyrir bát og skóla (hugmynd Aðalsteins sltóla-
stjóra), og' væri heppilegt, að vélstjórinn væri kunnugur maður og
sjómaður, er þekkti sig' vel í Djúpinu.
Blönduós. Engin yfirsetukona hefur fengizt í Nesjaumdæmi, og
hefur það því verið lagt undir ljósmóðurina í Skagastrandarkauptúni.
Ljósmæðurnar í Blönduós- og Engihlíðarumdæmum hættu nú báðar
störfum á miðju ári og flulíust hurt, svo að Ijósmóðurlaust var á
Blönduósi og 2 næstu hreppum fram yfir áramót. Ljósmóðirin í Vatns-
dalsumdæmi sagði einnig af sér, en fékkst þó til að gegna störfum til
bráðabirgða.
Sauðárkröks. Frá 1. september 1943 varð Lárus Jónsson Iæknir á
Siglufirði aðstoðarlæknir héraðlæknis samkvæmt lögum nr. 52 frá 30.
júní 1942 og skyldi jafnframt vera staðgöngumaður og til aðstoðar
læknum norðanlands eftir því, sem J)yrfti, allt að 4 mánuðum á ári.
Keflavikur. Á miðju ári veiktist læknir sá, er starfað hefur í meira
en 20 ár í Keflavík. Varð hann að fara i sjúkrahús. Var J)á héraðs-
læknir eini læknirinn í héraðinu (að Grindavík undan skilinni).
3. Sjúkrahús og heilbrigðisstofnanir.
A. Sjúkrahús. Töflur XVII—XVIII.
Sjúkrahús og sjúkraskýli teljast á J)essu ári samkvæmt töflu XVII
49 alls, eða einu færra en á síðast liðnu ári (Flateyrar og Norðfjarðar
lögð niður, Hafnar í Hornafirði bætzt við).
Rúmafjöldi hinna 49 sjúkrahúsa telst 1186, og koma ])á 9,4 rúm á
hverja 1000 íbúa. Almennu sjúkrahúsin teljast 43 með samtals 715
rúmum, eða 5,7%c, og hefur fækkað um 9 rúm. Á heilsuhælum eru
n’imin talin 257, eða 2,0%c.
Læknar láta þessa getið: