Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1943, Side 104
102
Rvík. Á þessu ári uxu enn þá erfiðleikarnir á því að koma þeim
sjúklingum í sjúkrahús, sem nauðsynlega þurftu á sjúkrahúsvist að
halda.
Rorgarnes. Sökum spítalaleysisins hér verður að senda frá sér svo
til alla sjúklinga, sem þurfa nokkurrar verulegrar umönnunar, svo
og ef aðgerðir þarf að gera meiri en svo, að sjúklingurinn gangi út
að henni lokinni. Sjúkrahúsmálinu miðar áfram að því leyti, að í sjóð
til byggingarinnar bættust kr. 12000,00 frá hreppsfélögum héraðsins
og nokkrar smágjafir að auki. Er nú sjóðurinn orðinn yfir 32 þúsund
krónur.
Dala. Sjúkraskýlið var ekki starfrækt á þessu ári. Sjálfur hafði ég
engin tök á því, og sýslan vildi eða gat þar hvergi nærri komið. Var
það ráð tekið að leigja hinum nýja kaupfélagsstjóra skýlið til íbúðar
í eitt ár, enda var hann í vandræðum með húsnæði.
Patreksfj. Sjúkraskýlið rekið á árinu ineð líkum hætti og áður.
Þegar ég kom hingað um áramótin, var það nær fullt af króniskum
sjúklingum og gamalmennum (7 af 10 n'imum), svo að litið var hægt
að taka af nýjum sjúklingum, þó að þörf væri fyrir. Vegna erfiðleika
í því sambandi og líka vegna þess, að gamla sjúkrahúsið var svo úr
sér gengið, að ekki var hægt að gera við það nema með ærnum kostn-
aði, var farið að ræða um byggingu nýs sjúkrahúss. Ekkert var þó
afráðið í því efni fyrir áramótin.
Flateyrar. Héraðið er sjúkraskýlislaust og læknirinn húsnæðislaus.
Þetta er ófremdarástand og alvarlegast vegna slysahættunnar á tog>
urunum, sem alltaf er tíðkvæmt hingað. Hef ég orðið að taka 14 sjúk-
linga inn í þröngt og óhentugt leiguhúsnæði mitt. Sjúkraskýlissjóður
Flateyrar var rúmlega 9 þúsund krónur í ágúst síðast liðnum. Hann
er nú nær 70 þúsund krónum og liklegt, að hann nái 100 þúsund fyrir
vorið. Það horfir því heldur vænlega um byggingu læknisbústaðar og
sjúkraskýlis á næstunni.
ísafj. Aðsókn að sjúkrahúsinu aldrei meiri en nú. Nokkurn þátt í
því á sérfræðingur í háls-, nef- og eyrnasjúkdómum, sem kom hingað
á árinu.
Ögur. Sjúkraskýlið ekki starfrækt á árinu.
Hólmavíkur. Sjúkraskýlið rekið með sama hætti og áður. Gengur
með ári hverju verr að fá stúlkur. Reykjavík og hraðfrystihúsið draga
allar til sín. Engin vill taka að sér svo bindandi starf að gæta sjúk-
linga.
Miðfj. Tekin til afnota nokkru fyrir áramót ný, ágæt skyggningar-
tæki, sem berklayfirlæknir útvegaði sjúkrahúsinu. Aðsókn að sjúkra-
húsinu með mesta móti. Hinum nýju tækjum komið fyrir í stærstu
sjúkrastofunni, sem var hólfuð í sundur með færanlegu skilrúmi
þannig, að þrátt fyrir tækin má hafa 2—3 sjúkrarúm i stofunni, ef
mikið liggur við. Mjög tilfinnanlegur halli fyrir lítið sýslufélag hefur
í þetta sinn orðið á sjúkrahúsrekstrinum hér, enda allt fólkshald
ínörgum sinnum dýrara, og þær litlu og bráðnauðsynlegu endur-
bætur á skýlinu, sem gerðar hafa verið, ofboðslega dýrar.
Rlönduós. Aðsókn að sjúkrahúsinu minni en árið næsta á undan,
að því er sjúklingatölu snertir, en legudagafjöldinn allmiklu hærri.