Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1943, Síða 107
105
gentæki notuð við 30 sjúklinga. Vaxandi erfiðleikar fyrir sjúkrahúsið
að fá hjúkrunarhjálp.
Norðff. Þar, sem áður var sjúkraskýli, er nú elliheiinili, og sjúkra-
hússkýrslur því engar að gera eða láta í té. Svo er að sjá og heyra,
«rið flestum þyki skömm og skaði að sjúkrahúsleysinu, nema bæjar-
stjórn. Jafnvel núverandi efnaleg velmegun ýtir ekkert undir enn
þá, og spáir það ekki góðu.
Beruff. Sjúkrastofa læknisbústaðarins ekki notuð þetta ár.
Siðu. Þegar læknisbústaðurinn var stækkaður 1926, munu 2 stofur
liafa verið ætlaðar sjúklingum. Þær eru í álmu norðan við aðalbygg-
inguna. Önnur er 20,77 ms með glugga móti vestri. Hin er að g'ólf-
fleti 1,80X1,70 m með glugga móti norðri og ónothæf fyrir sjúklinga
vegna kuída og rúmleysis. Miðstöðvarofnar eru um það bil helmingi
of litlir, eins og raunar allir aðrir ofnar í húsinu, því að rafmagn er
hvergi nærri nóg til upphitunar. Engin rúm né hjúkrunargögn fylgja
þessu „sjúkraskýli". Hér er ekki um neinn sjálfstæðan sjúkrahús-
rekstur að ræða,-heldur eru þessar stofur leigðar lækninum ásamt
íbúðinni, og hann tekur svo eftir þörfum og ástæðum sjúklinga heim
lil sín. Sjálfur hef cg enga heimasjúklinga haft á þeim tíma ársins,
sem ég hef verið hér. Læknisbústaðurinn er gamalt hús og mjög
úr sér gengið. Undanfarið hefur verið unnið að lagfæringu á hon-
iim, en það tilheyrir þó fremur viðhaldi en endurbótum og er hvergi
nærri lokið.
Vestmannaeyja. Héraðslæknir leigði loftvarnarnefnd afnot sjúkra-
stofu allt árið, ef bráðan háska bæri að höndum til viðauka sjúkra-
liúsplássi. Rauðakrossdeildin hér hefur látið útbúa 10 rúmstæði með
dýnuin og teppum, svo að þau eru til taks í aðkallandi nauðsyn. Vant-
ar þar enn náttborð og stóla. Sóttvarnarskýli er mjög aðkallandi nauð-
syn, sem bæta þarf úr með bráðabirgðabygging við sjúkrahúsið.
Grímsnes. Sjúkraherbergið ekkert notað þetta ár.
Keflavíkur. Sjúkraskýli Rauðakrossins í Sandgerði var starfrækt
jan.—14. maí eins og undanfarin ár. Héraðslæknir tók á móti sjúk-
lingum þar % dag í viku. Hjúkrunarkona (lærð) tók daglega á móti
•sjómönnum með smáskeinur og igerðir og vitjaði sjúkra í plássinu.
Undirbúningur er hafinn að fjársöfnun til fyrirhugaðrar sjúkrahús-
byggingar í Keflavík fyrir forgöngu Rauðakrossdeihlarinnar þar.
Verður efnt til bifreiðarhappdrættis á vori komanda í þessu skyni.
B. Sjúkrahjúkrun. Heilsuvernd. Sjúkrasamlög.
H j úk r u n ar f él ö g.
1. Hjúkrunarfélagið Líkn í Reykjavík gerir svofellda grein fyrir
störfum sínum á árinu:
Árið 1943 hafði hjúkrunarfélagið Líkn 8 hjúkrunarkonur í fastri
þjónustu sinni til 1. apríl, en frá þeim tíma 7. Störfum þeirra var
þannig hagað, að 2 þeirra störfuðu við berklavarnarstöðina, 3 víð
ungbarnaverndina og 3 við heimilisvitjanir til sjúklinga fram að 1.
npríl. Eftir 1. apríl annaðist aðstoðarhjúkrunarkona Slysavarðstofu
Reykj avíkur störf á fridögum þeirra, og auk þess var hjúkrunarkona
H