Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1943, Page 108
106
ráðin tii staðgöngu í sumarorlofum. Frá 1. apríl var tekið upp við-
tækt eftirlit með barnshafandi konum á vegum ungbarnaverndarinn-
ar, og' voru í því skyni ráðin læknir og ljósmóðir að stöðinni. Auk
þess starfaði afgreiðslustúlka við berklavarnarstöðina og stúlka við
ungbarnaverndina, sem sá um ljósböð ungbarna. Farið var í 6838
sjúkravitjanir. Meðlimatala Líknar er um 238. Tekjur félagsins voru
kr. 180846,54 og gjöld 173010,46.
2. Hjúkrunarfélagið Hjálp, Patreksfirði. Starfaði ekki á árinu.
3. Hjúkrunarfélagið Samúð, Bíldudal. Hætt störfum.
4. Rauðakrossdeild Akureyrar. Tala meðlima 426 ársfélagar og 27
ævifélagar. Tekjur kr. 20047,26. Gjöld kr. 770.30. Starfsemi deildar-
innar svij>uð og undanfarandi ár, nema hvað ekki tókst að fá iieina
hjúkrunarkonu til að annast bæjarhjúkrun. Sjúkrabifreið sú, sem
deildin hefur haft undanfarandi ár, var orðin svo lcteg, að ekki þótli
möguleiki á að flytja í henni sjúklinga lengur, og var hún því seld.
Deildin hefur nú loksins getað fengið aðra sjúkrabifreið í stað þeirrar
gömlu, en ekki kom sú bifreið hingað fyrr en um áramótin 1943—
1944 og var ekki tekin í notkun hér á árinu 1943. Áður en gamla bif-
reiðin var seld, voru farnar 16 ferðir í henni innan bæjar og 13 ferðir
utan bæjar. Deildin hélt á þessu ári uppi kennslu í hjálp í viðlögum
og hafði eins og áður forustu hjálparsveita þeirra, er veita eiga fyrstu
hjálp slösuðu fólki, ef til hernaðaraðgerða kæmi. Þá átti deildin einnig
fulltrúa í nefnd þeirri, er annaðist um sumardvöt Akureyrarbarna
í sveit. Deildinni afhent 7000 króna samskotafé í þeim tilgangi að
keypt verði ljóslækningatæki og deildin komi hér upp ljóslækninga-
stofu fyrir atmenning.
5. Sængurkvennafélagið Húsavík. 1 Engin greinargerð
6. Hjúkrunarfélag Desjamýrarprestakalls, !• um störf þeirra
Bakkagerði. ] á árinu.
8 j ii k r a s a m l ö g.
Samkvæmt upplýsingum Tryggingastofnunar rikisins voru lögskráð
sjúkrasamlög á árinu og meðlimafjöldi þeirra, sem hér segir, og er
miðað við meðalmeðlimatölu samkvæmt greiddum iðgjöldum:
Sjúkrasamlag Reykjavíkur .............. 25930
— Hafnarfjarðar ......................... 2527
— Bessastaðahrepps ........................ 54
— Mosfellshrepps ......................... 263
— Kjalarneshrepps ........................ 110
— Kjósarhrepps .......................... 224
-— Akraness .............................. 1120
•— Andakílshrej)j)s ........................ 80
— Lundarreykjadalshrepps .................. 74
— Reykholtsskóla .......................... 88
— ísafjarðar............................. 1774
— Staðarhrepps ............................ 81
— Sauðárkróks ............................ 480
— Siglufjarðar .......................... 1735
— Akureyrar ............................. 3736