Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1943, Side 109
107
Sjúkrasamlag Eiðaskóla ............... 49
— Seyðisfjarðar ........................ 475
— Neskaupstaðar ........................ 679
— Vestmannaeyja ....................... 1988
— Fljótshlíðarhrepps ................... 254
— Hvolhrepps ........................... 120
-— Holtahrepps .......................... 184
— Gaulverjabæjarhrepps ................. 178
— Villingaholtshrepps .................. 168
— Hraungerðishrepps .................... 179
— Stokkseyrarhrepps .................... 310
— Eyrarbakkahrepps ..................... 376
— Sandvíkurhrepps....................... 209
-— Skeiðahrepps ......................... 114
—- Gnúpverjahrepps ...................... 151
— Biskupstungnahrepps .................. 244
— Grímsneshrepps ....................... 135
-— Laugardalshrepps ...................... 82
— Laugarvatnsskóla ...................... 86
— Keflavíkurhrepps ..................... 692
Meðlimir samtals 44949
Meðlimatala hinna lögskráðu sjúkrasamlaga hefur þannig numið
36,0% (1942: 34,0%)' allra landsmanna (auk barna innan 16 ára
aldurs, sem tryggð eru með foreldrum sínum. Ef gert er ráð fyrir, að
harna- og unglingafjöldinn nemi allt að hálfri tölu hinna fullorðnu,
sem láta mun nærri, taka tryggingarnar orðið til rúmlega 50% lands-
manna.
Heilsuverndarstöðvar.
1. Heilsuverndarstöð Reykjavíkur.
Berktavarnir. Árið 1943 voru framkvæmdar 15146 læknis-
skoðanir (14572 árið 1942) á 8693 sjúklingum (7835). Tala röntgen-
skyggninga var 14046 (12904). Annazt var um röntgenmyndatöku
659 sinnum (673). Auk þess voru framkvæmdar 3165 loftbrjóstað-
gerðir (3402). 119 (104) sjúklingum var útveguð sjúkrahús-eðaheilsu-
hælisvist. Berklapróf var framkvæmt á 1253 (1208) manns, einkum
börnum og unglingum. Enn fremur var annazt um 881 (632) hráka-
rannsóknir, auk fjölda ræktana úr hrákum var 21 (32) sinnum ræktað
úr magaskolvatni. Séð var um sótthreinsun á heimilium allra smit-
andi berklasjúklinga, er til stöðvarinnar leituðu á árinu. Skipta má
þeim, sem rannsakaðir voru, í 3 flokka: 1) Vísað til stöðvarinnar oy
rannsakaðir þar í fyrsta sinn: Alls 3037 manns (3286), karlar 933
(1110), konur 1253 (1403), börn (yngri en 15 ára) 851 (773). Meðal
þeirra reyndust 150, eða tæplega 4,9% (174, eða 5,3%), með virka
berldaveiki. 39 þeirra, eða 1,3% (25, eða 0,8%), höfðu smitandi berkla-
veiki í lungum. 2) Þeir, sem voru undir eftirliti stöðvarinnar oy
henni þvi áður kunnir að meira cða minna leyti frá fyrri tíð: Alls
3063 (2640) manns, karlar 896 (734), konur 1456 (1210), börn 711