Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1943, Síða 110
108
(696). Meðal þeirra fannst virk berklaveiki í 149, eða 4,9% (186, eða
7%). 41 sjiíkl., eða 1,3%, höfðu smitandi berklaveiki í lunguni (34,
eða 1,3%). 3) Þeir, sem siefnt hefur verið til stöðvarinnar sökiun
hópskoðunar í ijmsum stéttum: Alls 2593 (1909). Meðal þeirra reynd-
nst 9 með virka berklaveiki, eða 0,35% (4, eða 0,2%). 4 þessara
9 reyndust vera með smitandi berklaveiki (0,15%).
Ungbarnavernd. Hjúkrunarkonur fóru í 10806 vitjanir á
heimilin til 1325 ungbarna. Enn fremur voru farnar 89 eftirlitsferðir
fyrir Sjúkrasamlag Reykjavikur til barnshafandi kvenna. Stöðin fékk
642 nýjar heimsóknir barna og' 756 endurteknar heimsóknir. 272
börn hafa notið ljósbaða á stöðinni 2584 sinnum. 1227 börn voru
bólusett gegn barnaveiki í fyrsta sinn og' 862 tvisvar sinnum.
Eftirlit með barnshafandi konum. 1550 skoðanir fóru
fram á barnshafandi konum frá 1. apríl til áramóta. Þar af komu
568 konur í fyrsta sinn. Ljósmóðirin fór í 382 eftirlitsferðir á heim-
ilin, þar af 179 fyrir Sjúkrasamlag Reykjavílcur. Ljósmæðranemar
Landsspítalans sóttu stöðina sem námsmeyjar í heimsóknartímuin
barnshafandi kvenna og ungbarna. Heimsóknardagar á Ungbarna-
verndinni voru þrisvar í viku, en fyrir barnshafandi konur tvisvar
í vilui.
Heilsuverndarstöðinni (ungbarnavernd og berklavarnarstöð) hafa
borizt gjafir, er nema ca. kr. 2000,00, auk 400 lítra af lýsi, sem hefur
verið útbýtt til sjúklinga.
2. Heilsuverndarstöð ísafjarðar.
Berklavarnir. Rannsóknir alls 783 á 737 manns, þar af nýir
560. Reyndust 77, eða 10,4%, hafa virka berklaveiki. 9 sjúklingar,
eða 1,2%, höfðu smitandi berklaveiki. Röntgenskyggningar 783.
Hrákarannsóknir 12. Blóðsökksrannsóknir 12. Loftbrjóst 151 (á ótil-
greindum fjölda sjúklinga).
3. Heilsuverndarstöð Siglufjarðar.
B e r k 1 a v a r n i r. Rannsóknir alls 1308 á 1136 manns. Reyndust
42, eða 3,7%, hafa virka berklaveiki. 10 sjúklingar, eða 0,9%, höfðu
smitandi berklaveiki. Loftbrjóstaðgerðir 129 á 13 sjúklingum. Stöðin
var opin 94 sinnum á árinu.
4. Heilsuverndarstöð Akureyrar.
Berklavarnir. Rannsúknir alls 2015 á 1103 sjúklingum. Reynd-
ust 117, eða 10,6%, hafa virka berklaveiki. 12, eða 1,1%, höfðu smit-
andi berklaveiki. Röntgenskyggningar 1748. Röngenmyndir 54. Hlust-
anir 344. Hrákarannsúknir 48. Blóðsökksrannsóknir 871. Berklapróf
450. Loftbrjóstaðgerðir 252 á 17 sjúklingum. Stöðin opin 2 daga í
viku, alls 100 sinnum á árinu.
5. Heilsuverndarstöð Seyðisfjarðar.
B e r k 1 a v a r n i r. Til stöðvarinnar leituðu 170 manns. Reyndust
17, eða 10,0%, hafa virka berklaveiki. Röntgenskyggningar 360 og
aðrar rannsóknir, svo sem berklapróf, hrákarannsóknir, blóðsökks-
rannsóknir og nákvæm hitamæling, efir því sem ástæða þótti til. I.oft-
brjóstaðgerðir 66 á 7 sjúklingum.