Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1943, Qupperneq 121
119
lélegur, en nokkuð var um nýbyggingar, og bætir það úr. Þrifnaður
ei' alls staðar sæmilegur, nema hvað viðvíkur salernum til sveita.
Þörfin fyrir þau virðist þar vera óþekkt hugtak. Steypt var upp lokuð
þró með dælu yfir stærsta brunninn i Þórshöfn og umræðum haldið
úfrain um vatns- og skólpveitu.
Vopnafj. Húsabyggingar urðu litlar í sveitinni, og mun skortur á
byggingarefni hafa valdið miklu. A einum hæ var hyggt einnar hæðar
5>teinhús án kjallara og geymsla allmikil áföst við húsið, einnig úr
steinsteypu. A öðrum bæ byggt einnar hæðar íbúðarhús, að mestu úr
limbri, en torfveggir á bakhlið hússins. 1 kauptúninu voru byggð 2
steinhús allmyndarleg, ein hæð með kjallara að mestu upp úr jörð,
miðstöðvarhituð. Enn freniur lítið steinhús — stofa og eldhús og
kjallari undir, að mestu ofan jarðar. 1 íbúðarhús úr timbri, járnvarið.
Þá lét landssíminn reisa hér símstöð. Er það vandað hús úr stein-
steypu, ein hæð og kjallari, að mestu ofan jarðar. Nokkrir bændur
komu sér upp vindrafstöðvum. Vatnsleiðslur voru lagðar allvíða og
ýmislegt gert til lagfæringar innan liúss, svo sem dúkar lagðir á gólf,
húsgögn keypt o. fl. Þrátt fvrir töluverðar umbætur á húsakynnum
utan sem innan, vantar þó mikið á, að umgengni og þrifnaður sé í
góðu lagi. Salerni vantar víða, lús og kláði halda furðanlega velli, og
almennur þrifnaður hefur ekki vaxið í réttu hlutfalli við aukna vel-
megun. Enda þótt víða hafi verið rúmt um ráð þessi ár, hafa færri
hendur verið til þess að þrífa til og þjóna á heimilunum, og hefur
það einnig óhjákvæmilega sín áhrif.
Fljótsdals. Húsakynni fara árlega batnandi. Nokkur eldri hús end-
urbætt, en ekkert nýtt hús fullgert á árinu, eitt í smíðum. Enn ])á
cru þó allt of mörg bæjarskrifli í héraðinu og sum eldri steinhúsin
illa gerð, rök og köld. Þrifnaður er misjafn, eins og gengur, en er
yfirleitt mikið ábóta vant, bæði innan húss og utan. Salerni eru fágæt.
Vatnssalerni eru í sumum hinna nýju húsa, en ekki öllum.
Seyoisfj. Ekkert nýtt hús hefur verið byg'gt, en 1 timburhús stein-
húðað, og er látið vel af því. Munu fleiri koma á eftir, og yrði það
bæði til gagns og prýði. Húsnæðisekla engin. Götur bæjarins hafa
farið mjög illa, á meðan setuliðið dvaldist hér, og er mikið verk fyrir
höndum að gera þær aftur sæmilegar.
Fáskrúðsfi. Húsakynni fara smábatnandi, en eru víða léleg. 2 ný
steinhús voru byggð í Búðaþorpi og byrjað á 3 slíkurn í Stöðvarþorpi.
Þrifnaði er ábóta vant, og gengur einkum erfiðlega að útrýma lúsinni.
fíerufi. Húsakynni hér í þorpinu eru í mestu niðurníðslu. Sum
þeirra varla hæfir mannabústaðir, og mundu fæstir sætta vig við að
búa í slíkum húsum nema þeir, sem aldrei hafa hugsað sér eða séð
neitt betra. Hjá öllum ekki fátækt um að kenna, heldur gömlu íslenzku
sinnuleysi, leifum frá gömlum tímum, þeg'ar örbirgðin svarf svo að,
að tnenn þóttust góðir að hafa ofan í sig. í sveitinni eru húsakynni
yfirleitt betri, einkum í Breiðdal. Þrifnaður er svona líkt og gengur
og gerist. Þó mun honum nokkuð ábóta vant, einkum utan húss hér í
kauptúninu.
Síðu. Lítið er um hyggingar. Og nýrri húsin eru jafnvel enn kaldari
en torfbæirnir, Þó að rafstöðvar séu víða, eru þær víðast of litlar til