Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1943, Side 129
127
Um nieðferð þeirra. Keniur sér vel að geta látið fólki í té pésann um
ungbarnameðferð.
Flateyrar. Meðferð ungbarna er góð og áhugi inæðra mikill um að
afla sér fræðslu um þessa hluti. Hefur bæklingur sá, sem gefinn er
út af landlæknisskrifstofunni, orðið mörgum konum handhæg rninnis-
bók og börnum þeirra styrkur. Mæður hafa vfirleitt börn sin á brjósti,
ef þær hafa einhverja heilsu.
Hóls. Ungbarnadauði enginn.
Hólmavíkur. Víða allgóð, sums staðar þó fvrir neðan meðallag'.
Lýsisnotkun eykst nokkuð.
Miðjj. Meðferð ungbarna yfirleitt rnjög góð og barnasjúkdómar fá-
líðir.
Sauðárkróks. Meðferð ungbarna mun yfirleitt mega telja góða, en
þó held ég, að margar konur hafi börnin of stutt á brjósti.
ÓlafsjJ. Ekki er hægt að segja annað en meðferð ungbarna sé góð,
])ótt eitt og annað megi að finna. Areiðanlegt er, að stuttan tíma
bafa flestar mæður börnin á brjósti og sumar rétt út sængurleguna.
Er ýmsu borið við, svo sem að konurnar mjólki ekki, að mjólkin
virðist óholl o. s. frv. Aðalatriðið er áreiðanlega það, að mæðurnar
þykjast ekki hafa tíma til þess að gefa börnunum brjóst, og ég veit,
að sumar hafa það alls ekki, þótt sorglegt sé frá að segja. Er hörmu-
legt til þess að vita, að sumar íslenkar konur hafa nú ekki orðið tíma
til þess að vera mæður. Liggur við, að manni flökri við öllu lýðvelds-
og sjálfstæðisskvaldri, þegar þannig löguð veila, ásamt öðrum ekki
betri, þjá þjóðarlíkamann. Þetta, og svo það, að pelinn vill alltaf vera
á lofti, þegar heyrist æmta í krökkunum, te! ég verst við meðferð
ungbarnanna. Einnig vill pelinn verða helzt til lengi förunautur
]>eirra, svo að þau venjast á aðra fæðu en æskilegt er.
Höfðahverfis. Meðferð ungbarna í mjög sæmilegu lagi, börn yfir-
leitt lögð á brjóst, ef sérstakar orsakir hindra ekki. Snemma er byrjað
a.ð gefa þeim lýsi. Heilsufar barnanna yfirleitt gott og enginn barna-
dauði.
Þistilfj. Meðferð ungbarna góð. Lýsisgjafir almennar.
Vopnafj. Meðferð ungbarna góð. Flest börn fá brjóst, og mörg heimili
gefa börnunum lýsi allan veturinn.
Fljótsdals. Meðferð ungbarna góð. Flest börn fá brjóst, en mismun-
andi langan tíma. Lýsisgjöf orðin nokkuð almenn.
Seyðisfj. Tel meðferð ungbarna góða. Leiðbeiningabæklingur, sem
allar mæður fá, á efalaust drjúgan þátt í því.
Fáskrúðsfj. Er hér góð. Flestar konur hafa börn sín á brjósti.
Vestmannaeyja. Aldrei nógu mörg börn á brjósti. Ég er að vona, að
ungbarnavernd komi hér góðu til leiðar.
Grímsnes. Góð.
9. íþróttir.
Almennastur áhugi virðist á iðkun sundíþróttar, og eru sundlauga-
gerðir aðalframkvæmdirnar til eflingar íþróttalífi i landinu.
Læknar láta þessa getið:
Hafnarfj. Bvggð sundlaug á árinu fyrir 530 þúsund krónur. Stærð