Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1943, Page 130
128
sundlaugarinnar sjálfrar er 25 sinnum 8% m, og er í hana notaðnr
upphitaður sjór. f sjálfri byggingunni eru baðklefar, búningsherbergi,
snyrtiklefar og gufuböð, og aulc þess er hægt að liggja þar í sólböðum.
Ekkert þak er yfir sjálfri sundlauginni, en háir veggir allt í kring.
Sundlaugin var opnuð til afnota í ágústmánuði.
Skipaskaga. Sundlaugarbygging í smíðum á árinu, 12.5X6,75 með
veggjum í kring og almenningsbaðhúsi við annan endann. Bygging-
unni ekki lokið.
Borgarnes. íþróttum nokkuð haldið uppi hér í Borgarnesi, sérstak-
lega leikfimi og' því, sem kallað er frjálsar íþróttir. Sund læra öll börn,
og er venjulega gerður út leiðangur i júní að sundlaug í Andakí! og'
legið þar við, meðan ú sundnáminu stendur. Hefur þetta gefizt vel.
Sjórinn kringum Borgarnes er tilvalinn til sundiðkana, enda oft á heit-
um sumardögum fjöldi fólks, sem notar sér það. Á íþróttamótum
Borgfirðinga verður að játa, að héraðsbúar mínir, utan Borgarness,
liafa helzt vakið eftirtekt á sér með fjarveru sinni frá hópi íþrótta-
manna.
Dala. Námskeið voru haldin í sundi og leikfimi fyrir fermingarbörij
við sundlaugarnar á Laugum og í Hörðudal. Aðrar íþróttaiðkanir ekki
teljandi.
Bildndals. Nokkur framför er í íþróttamálunum. íþróttakennari
hefur starfað hér nokkurn tíma undanfarna 2 vetur, og sundnám-
skeið er haldið hér á hverju sumri við vaxandi þátttöku.
Flateyrar. Iþróttir fremur lítið stundaðar hér. íþróttafélagið Grettir
liefur haldið uppi leikfimisnámskeiði í vetur eins og undanfarið, og
eru þau vel sótt. Sund er mikið stundað í hinni nýju sundlaug á sumr-
um, og eru þar haldin sundnámskeið árlega. Svo er einnig' um sund-
laugina í Súgandafirði.
IIóls. Sundlaugin í Bolungarvík var starfrækt á síðast liðnu sumri í
mánaðartíma.
Hólmavikur. Íþróttalíf dálítið að glæðast. SkíðaöJd að hefjast hér.
Miðfj. Ungmennafélagið í Miðfirði hefur liafizt handa uin bygg'ingu
sundlaugar við Reyki. Iþróttalíf er hér ekkert núna, og virðist áhugi
unga fólksins einkum beinast að dansskemmtunum.
Sauðárkróks. Föst leikfimiskennsla fer nú fram í barnaskóla Sauð-
árkróks, og á vorin eru börnin í Varmahlíð til sundnáms. Nolckuð af
ungu fólki mun einnig sækja leikfimiskennslu, en annars er heldur
dauft yfir íþróttalifi á Sauðárkróki.
Ólafsfj. Skíðaíþróttin talsvert iðkuð. Leikfimiskennsla í barnaskól-
anum, en notast verðnr við samkomuhússalinn, og er aðstaðan þar
frekar slæm. Sundkennsla fór fram, einungis skólabörn. Ivennt var í
kaldri laug að þessu sinni.
Höfðahverfis. Dauft yfir öllu íþróttalífi. Helzt stunduð knattspyrna.
Hér var íþróttakennari í sumar um hálfsmánaðartíma. Meðal annars
kenndi hann piltum fótbolta, en stúlkum handbolta. Hafizt var
handa um byggingu sundlaugar síðast liðið surnar, hún steypt og
steyptir upp veggir á skýli við hana. Mun hún í vor verða tekin til
afnota fyrir skólabörn ti! sundkennslu. Laugin er 5X12 m, minnsta
dýpi 0,9 m, mesta 1,55 m. Búningsldefar 2, 2,5X2,85 m, 2 salerni