Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1943, Qupperneq 137
135
abdomen og lokaði sárinu. Drengnum heilsaðist vonum fremur fyrst
eftir aðgerðina, en undir morgun hinn 11. varð hann órólegur og
baidinn; dró skyndilega af honum, og litlu eftir hádegi dó hann.
Blönduós. Eina sögulega ferð fór ég um miðjan febrúar til Skaga-
strandar til níu ára gamais drengs með magnaða botnlangabólgu.
Ófærð var og trauðlega bílfært, enda hríðarveður. Síðustu 2 km varð
inaður að ganga, vegna þess að skafl lokaði veginum. Lét ég bera
drenginn þann veg til baka í körfustóli, sem er létt og handhægt
burðartæki, komst með herkjubrög'ðum heim með hann í hríð og
uiyrkri og skar hann um nóttina. Botnlanginn var með drepi og kom-
inn að því að spring'a, en næsta dag ófært með ö!lu á miili, svo að
teflt var á fremsta hlunn.
Fljótsdals. Vegir hafa batnað mikið í seinni tíð, svo að sumar
ferðir eru orðnar auðveldari en áður var. Einnig hjálpar sími mikið
til. Vetrarferðir eru aftur á móti oftast erfiðar og tímafrekar. Og síðan
Hróarstunguhérað bættist við og héraðslæknir hefur orðið að annazt
það einn allan veturinn, fer öll starfsorka hans í ferðalög. Enda eng-
um einum manni ætlandi til lengdar að þjóna því svæði, svo að nokkur
mynd sé á. Flest af því, sem gera þarf við sjúklinga og framkvæman-
legt er í heimahúsum, verður að gerast þar. Erfitt er að fylgjast með
sjúklingum, en þó bætir síminn nokkuð lir því.
Vestmannaeijja. Ferðalög i aðkomuskip fátíð, síðan sliáðið liófst,
en áður fyrr oft verstu ferðir í stórsjó og hríðum fyrir Klett. í landi
er stöðugt rölt úr húsurn og í. Húsvitjanir tíðar, leitað til Iækna
yfirleitt með allt, stórt og smátt.
15. Slysavarnir.
Læknar láta þessa getið:
Borgarnes. Slysavarnir eru þær einar, og að vísu góðar og gagn-
legar, að öll börn læra sund. Björgunartæki munu geymd í Hjörsey,
en liklega kann engin með að fara, svo að gagn sé að, enda aldrei
reynd.
Flateyrar. Kvennadeild úr S. í. er hér starfandi og safnar fé til
björgunarbáts fyrir Vestfirði og radíóvita á Barðann.
ögur. Stofnuð var slvsavarnarsveit í Ögurhreppi, en er þö eftir að
ganga fyllilega frá því.
Sauðárkróks. Slysavarnardeildir eru starfandi 2 á Sauðárkróki.
Vinna þær að fjársöfnun lil slysavarna.
Höfðahverfis. Slysavarnardeild sú, er hér starfar, hefur gengizt fyrir
sundlaugarbyggingu.
Fljótsdals. Slysavarnir engar.
Vestmannaeyja. Eykyndiil, slysavarnardeild úr Slysavarnarfélagi
lslands, starfar að slysavarnarmálum ásamt Björgunarfélagi Vest-
niannaeyja. Veðurspár auglýstar og vörður stöðugur, sem fylgist með
landkomu bátanna og tilkynnir Slysavarnarfélaginu, ef ekki greiðist
úr á annan hátt.