Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1943, Page 141
139
komlega hundsað. G(et ég ekki leitt aðrar getur að því en hvernig
formennsku heilbrigðisnefndar er háttað. Að minnsta kosti er þar
aðalástæðan.
Borgarnes. Heilbrigðisnefnd i Borgarnesi hefur fundið að því, er
henni hefur þótt miður fara um almennan þrifnað, án þess að halda
formlega fundi um þau mál.
ísafi. Fundir aðeins 3 á árinu. Samþykktar tillögur til hreytingar
á heilbrigðissamþykkt bæjarins vegna aðkallandi aðgerða út af
veg'gjalúsaplágunni og um fyrirskipun á vatnssalernum í öllum ibúð-
um bæjarins. Bæjarstjórn vísaði tillögunum frá, unz ný heilbrigðis-
samþykkt yrði samin. Vegna húsnæðisvandræðanna samþykkt að
leyfa áður bannaðar kjallaraíbúðir. Heilbrigðisfulltrúi athugaði á ár-
inu vistarverur sjómanna á fiskibátunum, og voru þær taldar viðun-
andi. Einnig voru athugaðar ýmsar vinnustöðvar í bænum, en þær eru
margar mjög slæmar. Salerni bæjarins voru og athuguð, og' kom í Ijós,
að 121 fjölskyldu vantar vatnssalerni. Víða voru útikamrar mjög lé-
legir, og' nokkrar fjölskyldur höfðu hvergi aðgang að salerni.
Blönduós. Reykjalaug á Reykjabraut var endurbætt nokkuð, reistur
við hana skáli, svo að kennsla gat farið þar fram.
Segðisfi. Einatt fær heilbrigðisnefndin lítið lof fyrir störf sín.
Vestmannaegja. Heilbrigðisnefndin hefur engan heilbrigðisfulltrúa
sér til aðstoðar, eins og þarf að vera, og veit ég ekki, hvenær úr verður
bætt.
20. Bólusetningar. ■
Tafla XIX.
Skýrslur og' reikningar um bólusetningar hafa í þetta sinn ekki
borizt úr 19 héruðum (Hafnarfj., Borgarfj., Reykhóla, Flateyjar,
Bíldudals, Þingeyrar, Reykjarfj., Hólmavíkur, Blönduós, Siglufj., Ól-
afsfj., Húsavíkur, Öxarfj., Hróarstungu, Norðfj., Reyðarfj., Berufj.,
Vestmannaeyja og' Rangár), og munu þær yfirleitt hafa fallið niður
í þeim héruðum. Ná skýrslurnar til 1282 frumbólusettra og 1336 end-
urbólusettra barna. Kom bólan út á 59% hinna frumbólusettu og 57 %
hinna endurbólusettu.
Læknar láta þessa getið:
Hafnarfi. Bólusetningar féllu niður vegna mislingafaraldurs og
inflúenzu.
Skipaskaga. Bólusetningar fórust fyrir að meira eða minna leyti
vegna farsótta þeirra, mislinga og inflúenzu, sem gengu um vorið og
sumarið.
Dala. Bólusetningar fóru fram í öllum hreppum héraðsins nema
Fellsstrandarhreppi, en árangurinn lélegur.
Patreksfi. Bólusetning framkvæmd á venjulegan hátt í öllum hrepp-
um héraðsins.
Bíldudats. Féll niður að þessi sinni vegna farsótta.
Flategrar. Bólusett var í Mosvalla- og Suðureyrarhreppum, en fórst
fyrir á Flateyri vegna þess, að mislingafaraldur gekk hér yfir.
ísafi. Vegna farsótta féllu bólusetningar niður að öðru leyti en því,
að öll fenningarbörn voru bólusett og sjómenn i siglingum.