Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1943, Síða 142
140
Ögur. Bólusetningar fóru aðeins fram í Ögurhreppi og þó ekki öll-
um. Tafðist bólusetning vegna mislinga.
Hestei/rar. Bólusett voru flestöll börn á bólusetningarskrá, en bólu-
efni reyndist misjafnlega.
Hólmaviknr. Bólusetningar féllu niður vegna mislingafaraldurs.
fílönduós. Bólusetningar féllu mestmegnis niður vegna inflúenzu
og mislinga.
Sauðárkróks. Fóru fram í öllum umdæiuum nema Skefilsstaðaum-
dæmi. Þar eru svo fá börn, að venjulega er aðeins bólusett annað
Iivert ár. Bóluefni reyndist mjög misjafnt.
Ólafsfj. Bólusetningar fórust viðast fyrir vegna þess, að um líkt
leyti var ég að dæla i börnin barnaveikisserum.
Höfðahverfis. Vegna mislinga ekki hægt að bólusetja öll börn í
Laufássókn.
Fljótsdals. Héraðslæknir sendi öllum ljósmæðrum héraðsins bólu-
efni ásamt rækilegu bréfi með leiðbeiningum og hvatningum um að
senda skýrslur um árangurinn, þegar að lokinni bóluskoðun. Bólu-
setning fór fram í öllum hreppum, en skýrsla kom aðeins frá tveimur.
Seyðisfj. 1 kaupstaðnum auglýst almenn bólusetning í maí. Illa sótt
eins og venjulega. f hreppunum fórst bólusetning fyrir.
fíeruf). Fóru ekki fram í héraðinu á árinu.
Siðu. Fóru fram í öllum hreppum héraðsins. Nokkur börn sluppu
þó við bólusetningu, ýmist vegna veikinda, fjarvista eða trassaskapar
foreldranna.
21. Skoðunargerðir eftir kröfu lögreglustjóra.
Frá rannsóknarstofu Háskólans hefur borizt eftirfarandi skýrsla
um réttarkrufningar stofnunarinnar 1943:
1. 30. janúar. A. G-son, 26 ára. Fannst hengdur í herbergi sinu. Hengingarrák
eftir snæri á hálsinum. Annars ekkert áberandi við krufninguna.
2. 5. febrúar. H. K. V-son, 10 ára. Hékk aftan á herhifreið, er hcnni var ekið aftur
á bak á ljóskersstaur, svo að drengurinn varð á milli. Við krufninguna fannst
mikil blæðing i kviðarholi, scm virtist vera frá sprungnum hláæðum aftur við
h>-ygg-
3. 8. marz. A. E-son, 38 ára. Varð fyrir fallliyssuskcyti í Austurstræti i Rvik.
Skeyti þetta sást koma sem lýsandi rák utan af sjó og lenti á gangstéttinni í
Austurstræti, þar sem tveggja hnefa stórt stykki kvarnaðist úr því. A frakka
líksins var svarandi til efra innra hornsins á h. herðablaði kringlótt gat, 75
mm í þvermál, og var sviðinn hringur allt í kringum gatið. Á h. ermi var ca.
12 sm langt gat, sem stefndi upp og niður. Ekkert sviðið í kringum þetta
gat, þar sem skeytið virðist hafa farið út. Jakki og vesti mjög hlóðugt.
Hægri öxl var sundurtætt að aflanverðu, og var eitt samhangandi sár frá regio
supraspinata og niður á bak, en þaðan niður á aftanverðan h. handlegg, svo
að handleggurinn er eitt flakandi sár frá aftanverðri öxlinni og niður undir
olnboga. I>ar skildi 2 sm húðspöng á milli, og var framhlutinn af ii. upphand-
legg og ofanverðum framhandlegg sundur tættur og skinnlaus. Upphandleggs-
beinið var margbrotið, og' efri hiuti framhandleggsbeinanna var lika brotinn,
en capitulum radii blasti við í sárinu laust við hin beinin. Vöðvarnir á öllu
þessu svæði voru sundur tættir, en tiltölulega lítið blóð i sárunum. Maðurinn
dó, 10 klt. cftir að hann hlaut áverkann. Innri skemmdir fundust engar við
krulninguna. Ályktað, að maðurinn hefði dáið af afleiðingum áverkans vegna
shocks og blæðinga.
4. 17. marz. Ó. Á-son, 32 ára. Fannst látinn að heimili sínu, eftir að hafa kennt