Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1943, Blaðsíða 143
141
<*-
laslcika daginn áður. Við krufninguna fannst stækkað milti (410 g), og i lifr-
inni sást með ljcrum augum votta fyrir örlitlum, tæplega hirsikornsstórum
Ijósleitum lilcttum á gegnskurði. Við smásjárrannsókn kom í ljós, að þessir
blettir voru haugar af litlum streptokokkum, og sams konar streptokokkar
fundust i miltinu. Við smásjárrannsókn fannst blóð i tubuli nýrnanna og meiri
og minni blæðingar í giomeruli, cn einstöku á meðal þeirra hýaliníseraðir.
Ályktun: Dauðameinið blóðeitrun af völdum streptokokka, sennilega frá v.
lunga, þar scm hreinn gróður af sams konar kokkum fannst í bronchialslíminu
og byrjandi þétting á lungnavefnum.
5. 13. arpíl. Þ. K-son. Aldur ekki greindur. Nokkrum mánuðum fyrir andlátið
meiðsli á öxl af að bera þunga járnteina. A spítalanum fundust við gegn-
lýsingu breytingar í lungum, sem bentu til, að útsæði frá illkynjuðu æxli væri
í lungunum. Ályktun: Við krufninguna fannst krabbamein, er byrjað hafði í
brisinu. Hafði það vaxið Jjaðan inn í maga og auk J>ess sáð sér um kviðarhol
og brjósthol. Enn fremur fannst mikið útsæði i eitlum undir v. viðbeini og
í 2. rifi, sem hafði brotnað vegna æxlisvaxtarins. Við smásjárrannsókn
reyndist æxlisvefurinn, einnig' úr citlum og rifi, adenocarcinoma.
6. 24. april. R. P-dóttir, 34 ára. Kona þessi gifti sig fyrir 5 dögum, og upplýsti
lögreglan, að brúðkaupsveizlan hefði staðið yfir síðan. Að kvöldi 5. dagsins
varð konan meðvitundarlaus og refiexlaus og dó nóttina eftir. Ályktun: Við
krufninguna fannst mikil fersk blæðing í heilahimnum, sem vafalaust hefur
leitt konuna til bana á skömmum tima. Við smásjárrannsókn fannst einnig
byrjandi lifrarcirrhosis.
7. 26. apríl. R. P-dóttir, 42 ára. Dó í Landsspítalanum, nokkrum dögum eftir að
hún hafði fundizt meðvitundarlaus með iítils háttar áverka á liöfði úti í porti.
Ályktun: Við krufninguna fannst æðastiflun vinstra megin i heilanum (í a.
fossae Sylvii) og blæðing á takmörkuðu svæði út frá henni.
8. 26. april. H. K. S-son. Aldur ekki greindur. Varð fyrir herbifreið og andaðist
skömmu seinna á Landsspítalanum. Við krufninguna fannst brot á kúpubotn-
inum vinstra megin og mjög mikið mar á heilanum neðan verðum ásamt
miklum blæðingum út frá því. Á yfirborði v. lunga sáust nokkrir 2-eyrings-
stórir svartir blettir. Á gegnskurði sást dökkrauðsvartur vefur undir þeim,
aðeins í J>éttara lagi. Smásjárrannsókn með fitulitun á lunganu leiddi i ljós,
að margar háræðar og smærri slagæðar voru stiflaðar af fitudrönglum. í nýr-
um fannst nephrosclerosis. í h. lungnabroddi tuberculosis. Ályktun: Haus-
kúpubrot með miklu mari á heilanum, ásamt fituemboli í lungum, sem í sam-
einingu hefur leitt til dauða á skömmum tíma.
9. 29. mai. Óskírt 6 mánaða barn, sem andaðist á heimili Hjálpræðishersins
skyndilega. Ályktun: Við krufninguna fannst enginn sjúkdómur, sem skýrt
gæti dauða barnsins. Smáblæðingar undir brjósthimnu ásamt votti af sprungn-
um loftblöðrum (emphysema interstitiale) i lungunum bentu til, að barnið
befði kafnað. Engin áverkamerki fundust, að undanleknu smáfleiðri á v. nas-
væng. Eftirtektarvert var, að Hkblettirnir voru allir framan og vinstra megin
á barninu, og bendir það til, að barnið hafi legið á grúfu, svo að hugsanlegt
er, að það liafi kafnað á koddanum. Barnið var í góðum holdum og virtist
hafa verið sæmilega hirt.
10. 25. júlí. G. H-son, 18 ára. Var á fuglaveiðum ásamt öðrum pilti, og iiafði
sinn riffillinn hvor. Hafði annar þeirra hitt fugl og sært og hinn pilturinn
kallað til G. H., að hann (hinn) skyldi gera út af við fuglinn. G. H. mun ekki
hafa heyrt þetta og hljóp til fuglsins, en í því reið skotið af og kom í G. H.
Ályktun: Við líkskoðun og krufningu fannst skotsár, sem gengið liefur frá baki
neðanvert við h. herðablað, upp á við og fram á við í gegnum h. lunga, og
fannst kúlan undir skinni rétt neðan við h. viðbein. Þar sem kúlan fór í gegn-
um mitt h. lunga, hafði hún hitt á a. pulmonalis og af þvi hlotizt mikil blæðing
inn í h. brjósthol (ca. 1% 1), sem á skömmum tíma hefur leitt til bana.
H. 13. sept. V. S-son, 63 ára. Dó á biðstofu hjá lækni í Reykjavik, sem hafði
haft hann til meðferðar í vikutíma vegna mikillar hjartabilunar. Ályktun:
Við krufningu fundust stór blöðrunýru beggja megin (v. 1000 g, h. 695 g). Auk
]>ess fannst mikil kransæðakölkun í hjartanu með miklum þrengslum í báð-
um kransæðum. Enn fremur fannst mikið barkakvef, sem náði ofan í lungna-
pipur. Sjaldgæft er, að menn mcð blöðrunýru nái svo háum aldri. Kransæða-