Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1943, Side 199
Hinn 26. dag nóvembermánaðar 1755 situr Bjarni, síðar landlæknir,
Pálsson í Viðey og ritar í dagbók sína m. a.:
Grimr Eyriksso/i i Niardvik de dato 22. hujus skrifar niier umm stulku
barn dottur sina lited stalpada sem hafc nilega feinged fylle fnrer lifed mcd
ini'A-illre herdslu er geingur þrcrs yfirunim regionein unibilicalcm og tutnar
so ut naflen/i. Ecke eykst ])iu/ ineir þo inett sie en/i annars. Hann bidur uinm
rad og medol.
13. næsta mánaðar víkur hann aftur að þessum sama sjúklingi:
Grimr Eyriksson i Niarvik (sic) de dt0 10. hujus vegna stulku barns sins,
se/n hefur mikla fille yfir umm naflann sem ætid er ad aukast med sarumm
verkium. Hann skrifade mer og a dogunumm umm sama efne. Eg get hverki
skrifad ho/u/mm ne sendt þnr eingnr ferder eru so eg vite.
Viku síðar rætist úr um ferðina, því að 20. s. m. ritar Bjarni í
dagbókina svo látandi útdrátt úr bréfi til Gríms bónda:
Grirne Eyrikssyne 1° umm stulkuna litlu med fyllena, min meining ad
einasta hialpe gasterostomia1) og eingenn innvortes medol.
Þegar þess er gætt, að gasterostomia hlýtur hér að merkja hið sama
sem að opna (og láta opið) kviðarholið, og Bjarni virðist ráða af líkuin,
að sú „fylli“ gangi að barninu, er vér nefnum nú sullaveiki, má með
sanni segja, að hér sé svo nýtízkulega á málinu tekið, að miklu lík-
legra væri, að framanskráðir dagbókarkaflar væru í fyrsta lagi skrif-
aðir nærri hálfri annarri öld siðar, eða á síðasta áratug næstliðinnar
aldar, og þá allra helzt af Guðmundi Magnússyni, frumkvöðli skurð-
aðgerða við sullaveiki liér á landi.
En þegar það á hinn bóginn er hugleitt, hvenær þetta er skrifað,
hvernig þekkingu lækna á sullaveiki var þá farið, hverja tröllatrú
þeir höfðu almennt á áhrifamætti lyfja sinna, en bráður dauði vísust
afleiðing af hvers konar skurðaðgerðum á kviðarholi, enda því nær
ekkert um hönd hafðar, hlýtur það að vekja furðu, annars vegar hve
raunsær Bjarni Pálsson er á gagnsleysi lyfja í þessu tilfelli, en hins
vegar að því er virðist ótrúlega grandalaus um þeirrar tíðar hættur af
1) Orðið virðist misritað: gasterofsomia, en Bjarna Pálssyni liætti stundum
til svipaðra pennaglapa.