Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1960, Blaðsíða 78
1960
— 76 —
mál, rauðleitar, aumar viðkomu. Voru
hvort tveggja börn, drengur 9 ára og
stúlka 7 ára. Drengurinn fékk auk
þess migrerandi arthritis, og stóð lið-
bólgan 1—2 sólarhringa í hverjum lið
og gekk yfir alla stærri liði útlimanna
á 10 dögum. Berklapróf (Moro) reynd-
ist neikvætt hjá báðum, sökk eðlilegt
og hiti lítili sem enginn (rheuma-
tismus?).
Ólafsfj. Gekk alla mánuði ársins
nema júní.
Grenivikur. Kom fyrir aila mánuði
ársins, en yfirleitt væg, einna þrálát-
ust i desembermánuði, og fylgdi henni
hár hiti.
Breiðumýrar. Eitthvað skráð alla
mánuði ársins, en ekki i stórum stíl
nema í desember. Þá gekk hún sem
faraldur í Laugaskóla. Þrisvar skorið
í abscessus retrotonsillaris.
Húsavíkur. Talsvert um hálsbólgu.
Vopnafj. Stakk sér niður alla mánuði
ársins. Engir verulegir fylgikvillar.
Norður-Egilsstaða. Viðloðandi allt
árið, en enginn slæmur faraldur.
Seyðisfj. Enginn faraldur, en stakk
sér niður öðru hvoru. Dálitið bar á
jiví, að börn fengju otitis media.
Nes. Mjög útbreiddur kvilli flesta
mánuði ársins.
Vikur. Allmikil alla mánuði ársins.
Vestmannaeyja. Tíður gestur á ár-
inu, og seinustu mánuði þess gekk all-
slæmur faraldur, og bar talsvert á
miðevrnabólgu upp úr bólgunni, eink-
um í börnum; var hér vafalítið ura
streptokokkaangina að ræða.
Hafnarfj. Kom fyrir í öllum mánuð-
um ársins. f nóvember og desember
fjölgaði tilfellum þrefalt frá þvi, serri
verið hafði undanfarna mánuði.
Reyndist það vera streptokokkaangina,
sem mycin unnu ekkert á, en peni-
sillín reyndist bezt ásamt súlfalyfjum.
Kópavogs. Nokkuð á ferðinni allt
árið, mest í janúar og aftur i nóvember
og desember. Olli þá nokkurri truflun
á starfi skólanna, því að margir kenn-
aranna veiktust.
2. Kvefsótt
(catarrhus respiratorius acutus).
Töflur II, III og IV, 2.
1956 1957 1958 1959 1960
Sjúkl. 21929 16738 21011 26631 27405
Dánir 7 2 7 3 6
Var á ferð með allra mesta móti,
jafnt dreifð á árið, en í engu frá-
brugðin því, sem gerist.
Rvík. í febrúar og marz var óvenju-
mikið um kvefsótt.
Akranes. Eins og áður viðloðandi
allt árið, en mest i ársbyrjun og í árs-
lok.
Búðardals. Viðloðandi allt árið.
Faraldrar í janúar, marz og ágúst.
Algengastir fylgikvillar virðast vera
otitis media i börnum og sinuitis i
fullorðnum.
Patreksfj. Dreifð jafnt yfir árið.
Fæstir koma á skýrslu.
Þingeyrar. Viðloðandi allt árið.
Flateyrar. Kvilli þessi var venju
samkvæmt viðloðandi allt árið.
Suðureyrar. Þessi umgangsveiki hag-
aði sér nokkuð öðruvísi en venjuleg
kvefsótt. Sjúklingar kvörtuðu yfirleitt
um mikinn höfuðverk, slappleika og
jafnvel svima. Margir fengu slæma
hálsbólgu og sumir óþægindi frá tract.
alimentarius. Sumir með hita frá 38,5°
—40°, en sumir hitalitlir. Sjúklingum
hætti við að slá niður aftur, ef þeir
fóru ekki varlega með sig. Miklu fleiri
fengu veikina en skýrslan nær yfir.
Hvammstanga. Vex með ágústmán-
uði, helzt há út árið.
Hofsós. Kveffaraldur sá, sem gekk
i apríl og mai, var heldur góðkynja
og lítið sem ekkert um fylgikvilla.
Ólafsfj. Stakk sér niður alla mánuði
ársins nema febrúar, júlí, september
og október.
Grenivikur. Óvenjumikið um kvef-
sótt flesta mánuði ársins, en þó mest
í júlí og ágústmánuði og svo aftur i
október og nóvember, en minnst í
desembermánuði.
Breiðumýrar. Óvenjumörg tilfelli
skráð fyrstu og síðustu mánuði árs-
ins. Engin alvarleg eftirköst.
Húsavíkur. Allmikið um kveffarald-
ur á árinu.