Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1960, Side 108
1960
— 106
Aðgerðir samkvæmt afkynjunar-
og vönunarlögum nr. 16/1938.
Alls bárust á árinu 62 umsóknir sam-
kvæmt lögum þessum. 9 var synjað, en
46 voru framkvæmdar.
Rvík. Vansköpuð voru 17 börn: Með
klofinn góm og vör 4, með samvaxna
fingur á annarri hendi 1, „monster“
3, mongolismus 1, vantaði alveg kvið-
vöðva 1, hydrocephalus og spina bifida
1, pes planus 1, pes equinus 2, óskýr-
greint 2. Af mæðrum voru 1700 gift-
ar, en ógiftar 529, eða 23,7%; 273
bjuggu ekki með barnsföður, eða
12,2%. Aldur mæðra var sem hér seg-
ir: 14 ára 1, 15 ára 7, 16 ára 23, 17
ára 61, 18 ára 88, 19 ára 106, 20—29
ára 1143, 30—39 ára 708, 40 ára 26,
41 árs 24, 42 ára 15, 43 ára 12, 44 ára
8, 45 ára 3, 46 ára 3, 47 ára 1. í fæð-
ingarstofnunum fæddu 2074 konur, en
i heimahúsum 155, eða 7,0%.
Búöardals. Tvær fæðingar voru af-
brigðilegar. 32 ára multipara þurfti ég
að svæfa og draga fram fót vegna
þverlegu. Tókst það vel. 24 ára
multipara hafði misst legvatnið i byrj-
un fæðingar, sem gekk hægt þrátt fyr-
ir harðar hríðir. Reyndist vera fram-
höfuðstaða, sem ekki vildi lagfærast.
Lagði á töng, en barnið fæddist and-
vana.
Hvammstanga. 29 konur fæddu á
sjúkrahúsinu. Allar fengu trilene-
analgesia. Ein viðgróin fylgja, sem
varð að flá út. Engin tangarfæðing i
héraðinu siðustu 6 árin. Tvær konur
voru sendar á Fæðingardeild Lands-
spítalans, gerður keisaraskurður á
annarri, en hin fæddi eðlilega. Þrjár
konur fæddu í skyndingu heima, án
þess að Ijósmóðir eða læknir væru
nærstödd. Óllum konunum heilsaðist
vel utan einni, sem fékk hastarlegan
hita og óráð 2 sólarhringum eftir fæð-
ingu. Var hún mjög anemisk og ör-
þreytt. Náði sér tiltölulega fljótt við
blóðgjöf og antibiotica, send siðar á
árinu til vönunar.
Hofsós. Eitt tilfelli kom fyrir af
placenta praevia. Blæddi lítillega um
mánuði fyrir fæðingu, og var konan
flutt til Akureyrar og beið fæðingar-
innar þar. Barnið var tekið með keis-
araskurði. Aðrir þungunarsjúkdómar:
Anaemia in graviditate 4, obstipatio
1, pyelitis 1, mastitis puerperalis 1.
Tvær konur misstu fóstur og leituðu
báðar læknis. Var önnur þeirra all-
mikið blædd. Leg var skafið út og
konunni gefið macrodex og glúkosu-
upplausn i. v., og hresstist hún fljótt.
ÓlafsfJ. Læknir viðstaddur 21 fæð-
ingu af 24. Fæðingar gengu allar vel,
og var eingöngu um deyfingu að ræða.
Dalvíkur. Viðstaddur 12 fæðingar.
Akuregrar. Langflestar barnshafandi
konur fæddu á fæðingardeild Sjúkra-
húss Akureyrar, eða 336 konur, en
aðeins 35 konur fæddu í heimahúsum.
Læknisaðgerðir i sambandi við fæð-
ingar voru: 5 keisaraskurðir, 5 tang-
arfæðingar, 3 framdrættir og vending-
ar, 2 fvlgjur sóttar með hendi. 6 börn
fæddust andvana, 3 drengir og 3 stúlk-
ur. Vanskapanir voru þessar: skarð i
vör 1, hendur og fætur stærri en vana-
lega 1.
Grenivíkur. Sex sinnum var min
vitjað til fæðandi kvenna. Allar fæð-
ingarnar gengu vel.
Breiðumýrar. Aðeins 1 fæðing á
skrá í héraðinu á árinu, enda sagði
sú eina ljósmóðir, sem eftir var starf-
andi i því, umdæmi sínu lausu vorið
1960. Er þá svo komið, að allar konur
fara úr héraðinu til Akureyrar eða
Húsavíkur eða jafnvel enn lengra til
að ala börn sín. Það má teljast aftur-
för eða þá framför, eftir þvi frá hvaða
bæjardyrum horft er á málið. Ljós-
móðurstörf i dreifbýli, 10—12 fæðing-
ar á ári, eru illa samræmanleg því,
að ljósmóðirin geti unnið eða tekið
að sér önnur störf, en á hinn bóginn
að vonum ekki greidd svo, að Ijós-
móðirin þurfi ekki að hafa aðrar tekj-
ur af annarri vinnu samhliða. Ég hef
5 sinnum á árinu verið tilkvaddur
vegna fósturláta í héraðinu. Gengu þau
öll tíðindalaust og án þess að nokkur
kvennanna þyrfti á sjúkrahús.
Húsavíkur. Fæðingar fara sem áður
yfirleitt allar fram á sjúkrahúsinu.
Vopnafj. Af 17 konum fæddu 13 á
skýlinu. Öll fæddust börnin fullburða
og lifandi.
J