Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1960, Page 145
— 143 —
1909
um í heilt ár. Hún hafði verið á
sjúkrahúsi i Reykjavík, þangað
til tveim dögum áður en hún dó.
Fór þá gangandi heim til sín, öll-
um að óvörum. Hún var aftur
flutt á spítalann, en neitaði að
vera þar áfram, og var hún þá
send heim. Maður konunnar mun
hafa tekið eftir því, að hún gerði
tilraun til að taka inn einhver
meðul, þ. á m. eter. Daginn, sem
konan lézt, fór maðurinn út um
hádegið og kom aftur um tvöleyt-
ið. Er hann kom aftur, var kon-
an loðmælt og andstutt. Sama
dag, um kl. 16.00, fór maðurinn
aftur út og var í burtu um hálf-
tíma. Þegar hann kom aftur, fann
hann konu sína meðvitundarlausa
á salerninu. Hringdi hann strax á
sjúkrabil og fór með hana upp á
Slysavarðstofu, en hún var látin,
er þangað kom. Ályktun: Við
krufningu fannst v. lunga allt
ónýtt af gamalli, krónískri lungna-
bólgu (carnificatio). í neðsta
hlaði og' miðblaði h. lunga var
allmikil, fersk lungnabólga (af
hæmolytiskum streptokokkum), en
efsta blað h. lunga var lítt not-
hæft vegna lungnaþembu. Við
smásjárrannsókn sáust örlitlir
hnútar á víð og dreif í lungunum,
sem liktust berklahnútum, sums
staðar voru ystingar í þeim. Við
ræktun fannst, að um berklasýkla
var að ræða. Sectionsdiagnosis:
Tuberculosis pulmonum miliaris
chronica.
4. apríl. Karl, 44 ára. Maður þessi,
sem var bilstjóri, hafði verið las-
inn undanfarna viku og kvartað
i'm höfuðverk og svima og verið
við rúmið, en farið þó á fætur til
að borða og til þarfa sinna. Enginn
læknir hafði lcomið til hans, og
Þetta hafði haldizt svona, þangað
til að kvöldi 2. apríl, að maður-
inn sofnaði um 11-leytið, en kl.
5.00 um morguninn eftir varð
kona hans vör við, að hann var
að bylta sér i rúminu. Þegar kon-
an fór á fætur kl. 9.00 um morgun-
inn, sá hún, að maðurinn lá á
grúfu, og hélt, að liann væri sof-
andi, en er hún fór að athuga um
hann kl. 10.00, var hann látinn.
Ályktun: Við krufningu fannst
sprunginn æðahnútur á slagæð
neðan á heilanum, og hafði blætt
jjaðan mikið inn í heilann. Þetta
hefur valdið manninum bana. Auk
þess fundust mikil þrengsli i
kransæðum hjartans, sem hafa
gert blóðrás hjartans erfitt fyrir.
Við smásjárrannsókn á æðahnútn-
um, sem sprungið hafði, sáust
heilahimnurnar þykknaðar í
kring og infiltreraðar af plasma-
frumum, stórum fagocytum og
einstaka segm. leukocytum. Mikil
plasmafrumuinfiltratiori sást
hringinn i kringum margar æðar.
Histologisk diagnosis: Meningitis
luetica.
21. 5. apríl. Kona, 69 ára. Kona þessi
hafði fundizt liggjandi meðvit-
undarlaus á gólfinu heima sjá sér
kl. 4 að morgni dags. Ekki er
vitað, hve lengi hún hafði legið
þannig, þvi að hún bjó ein út af
fyrir sig. Dálítið hafði blætt úr
munni og nefi, en læknir, sem
þangað kom, sá ekkerl, sem hún
hefði getað rekizt á, og hún lá á
mjúkri ábreiðu á gólfinu. Einhver
merki sáust um, að hún hefði
kastað upp. Þegar slím og' blóð
var þurrkað úr munni og koki,
sáust þar leifar af hvítum töfl-
um. Enginn mun hafa séð kon-
una siðustu 36 klst., sem hún lifði.
í svefnherbergi konunnar fundust
umbúðir utan af doriden-töflum,
en ekkert í glasinu. Álvktun: Við
krufningu fannst engin.i sjúkdóm-
ur, sem útskýrt gæti dauða kon-
unnar. Sennilegt er, að hún hafi
dáið af að taka inn stóran skammt
af svefnlyfi, en það hefur ekki
verið barbiturat, sem annars er
oftast notað í þeim tilgangi. Lík-
legt er, að það hafi verið doriden,
en hér voru ekki tök á að rann-
saka fyrir því lyfi.
22. 9. apríl. Karl, 59 ára. Maður þessi
var skipstjóri á dönsku skipi, sem
hafði strandað hér nokkrum dög-
um áður. Daginn áður en hann
dó, mun hann hafa fengið skeyti