Hugur - 01.01.2018, Blaðsíða 13
Afstæðishyggja, ágreiningur og amerísk heimspeki 13
og margir þeirra Kínverja sem nú kenna við háskólana og stunda þar rannsóknir,
framúrskarandi bæði í meginlandsheimspeki og analýtískri, eru með gráður frá
vestrænum háskólum.
Heimsþing heimspekinga árið 2018 verður haldið við Háskólann í Beijing.
Þetta verður stærsta samkoma heimspekinga í mannkynssögunni og kollegi
minn, Dermot Moran, er einmitt í forsvari fyrir samtökunum sem halda þingið,
FISP (Fédération Internationale des Sociétés de Philosophie). Íslenski heim-
spekingurinn Sigríður Þorgeirsdóttir er að skipuleggja fyrirlestra og mikilvæga
viðburði um stöðu kvenna í heimspeki. Ég hlakka til Heimsþings heimspekinga í
Kína og vona að það verði hápunkturinn á nokkuð óvæntum kynnum mínum af
heimspekisamfélaginu í Kína.
Að lokum langar mig að spyrja þig út í núverandi rannsóknarverkefni þitt, When
Experts Disagree, sem snýst um sérfræðiþekkingu, ágreining og samskipti milli sér-
fræðinga og almennings. Þessi málefni hafa verið gríðarlega fyrirferðarmikil undan-
farið (samanber Brexit og forsetakjörið í Bandaríkjunum), en verkefnið fór reyndar af
stað áður en þetta vantraust á sérfræðingum varð svona áberandi í opinberri umræðu.
Hvers vegna ákvaðst þú að koma þessu verkefni á laggirnar? Varstu búin að sjá þessa
þróun fyrir?
When Experts Disagree (WEXD) er þverfaglegt verkefni sem fjallar um ágreining
milli vísindamanna þar sem ágreiningur innan loftslagsvísinda, sem er sífellt póli-
tískt þrætuepli, er borinn saman við ágreining í stjarneðlisfræði, þar sem pólitísk
álitamál eru víðs fjarri. Í vísindum er gjarnan litið svo á að engin niðurstaða eða
aðferð sé hafin yfir gagnrýni, þannig að ágreiningur meðal vísindamanna er oft
talinn hafa góð áhrif. Í loftslagsvísindum vandast málið hins vegar, því þar er
oft litið á ólíkar skoðanir sem merki um að vísindamennirnir aðhyllist tiltekin
pólitísk viðhorf. Verkefni okkar felst í að rannsaka heimspekileg álitamál sem
snúa að sérfræðiþekkingu og ágreining. Við notumst einnig við aðferðafræði til-
raunaheimspekinnar (e. experimental philosophy) til að bera saman viðhorf fólks
til ágreinings innan þessara tveggja vísindagreina. Ég get því miður ekki sagt að
ég hafi séð fyrir að verkefni okkar myndi tengjast þeim pólitísku sviptingum sem
við verðum vitni að þessa dagana. En það var með þetta, líkt og svo margt annað
í lífi mínu, að ég ætlaði mér ekki endilega að fara inn á þessa braut, heldur endaði
ég þar vegna þess að ég var lánsöm og tilbúin að prófa nýja hluti þegar tækifærið
gafst.
WEXD er samstarfsverkefni mitt og Lukes Drury, sem er stjarneðlisfræðing-
ur. Nú er verkefnið að komast á annað stig, sem hófst með stórri ráðstefnu um
traust, sérfræðiþekkingu og stefnumótun í byrjun september 2017. Okkur Luke
var nýlega boðið að taka þátt í vinnuhópi um þessi efni á vegum Bresku akadem-
íunnar og samtakanna ALLEA (All European Academies). Við tókum meðvit-
aða ákvörðun um að láta þetta stig verkefnisins snúast um pólitísk málefni og
sjáum nú að rannsóknir okkar hafa bein tengsl við félagsleg málefni. Við munum
því ekki aðeins einblína á loftslagsvísindi og stjarneðlisfræði á þessu stigi, heldur
einnig skoða mál sem tengjast pólitík með beinum hætti, svo sem traust á fjöl-
Hugur 2018meðoverride.indd 13 24-Jul-18 12:21:21