Hugur - 01.01.2018, Síða 106
106 Jón Ásgeir Kalmansson
hún hefur sjálf fram að færa: Maðurinn er dýr. Að vera dýr er að vera fullur af lífi,
þrunginn veru (e. full of being). Dýr er holdi klædd sál (e. embodied soul), fullkomin
eining sálar og líkama, líkams-sál (e. body-soul).57 Heimspekingar hafa löngum
lagt áherslu á sérstöðu mannsins, hugsun hans og skynsemi, og gert lítið úr hinu
„dýrslega“ í manninum. Þetta eru grundvallarmistök ef marka má Costello. Þau
sannindi sem skipta ekki síður máli varða það sem við deilum með dýrunum, lík-
amleikann, það að við erum áþreifanleg, hreyfum okkur um í heiminum, finnum
til, skynjum og hugsum með öllum líkamanum:
,Cogito ergo sum,‘ sagði hann [Descartes] einnig, eins og þekkt er orðið.
Þetta er hugmynd sem ég hef alla tíð verið ósátt við. Hún gefur í skyn
að lifandi vera, sem hugsar ekki samkvæmt skilningi okkar, sé á einhvern
hátt annars flokks. Ég stilli hugsun eða ígrundun upp á móti fyllingu,
líkamleikanum, tilfinningunni fyrir því að vera til – ekki vitundinni um
sjálfa sig sem tegund andlegrar rökvélar sem framleiðir hugsanir, heldur
þvert á móti tilfinningunni – mjög áhrifamikilli tilfinningu – fyrir því að
vera líkami með útlimi sem eru framlenging út í rýmið, fyrir því að vera
lifandi í heiminum. Þessi fylling stangast algerlega á við grunnástand
Descartes sem virðist innantómt: eins og baun sem hringlar inni í skel.58
Erfiðleika okkar við að skilja hugmyndir Costello um meðhöndlun okkar á
dýrunum, og erfiðleika okkar við að samsama okkur með henni sem manneskju,
má því auðveldlega tengja við fjarlægingu okkar frá eigin líkamleika, við veiklaða
tilfinningu okkar fyrir því að vera heilar líkamlegar verur. Þessir erfiðleikar eru
dæmi um það á hvern hátt samband okkar við okkur sjálf og við aðrar lifandi
verur er laskað, og hvernig „siðferði okkar byggist á afneitun holdsins“, eins og
Jung orðar það.59
Hins vegar er sýn Costello á menn og önnur dýr sem holdi klæddar sálir lyk-
illinn að því að skilja þá afstöðu til þekkingar og skilnings sem hún lætur í ljós,
og hugmyndir hennar um getu manna til að hugsa sig inn í veru annarra manna
og dýra. Hver lifandi vera býr að hennar dómi yfir ósértækri þekkingu sem er al-
gerlega bundin hennar holdi klæddu sál. Þessi þekking er ekki sértekin vitneskja
sem hin lifandi vera „hefur“ eða „býr yfir“, eins og keppandi í spurningakeppni
býr fyrir þekkingu á ýmsum staðreyndum. Þetta er fremur, eins og áður var vikið
að, þekking sem hin líkamlega vera er. Umræða Costello um dauðann varpar ljósi
á þetta atriði. Costello segir að hægt sé að vita hvernig það er að vera dauður og
sú vitneskja sé ekki almenn og rökleg, heldur í holdi manns og blóði: „Þekkingin
sem við höfum er ekki sértæk – ,Allir menn eru dauðlegir, ég er maður, þess
vegna er ég dauðlegur‘ – heldur holdguð [embodied]. Um stundarsakir erum við
sú þekking.“60 Holdleg vitneskja um skjólleysi andspænis dauðanum fyllir líkam-
57 Coetzee 2003: 33.
58 Sama rit: 33.
59 Jung 2002: 86.
60 Coetzee 2001: 32.
Hugur 2018meðoverride.indd 106 24-Jul-18 12:21:26