Hugur - 01.01.2018, Blaðsíða 58
58 Svavar Hrafn Svavarsson
andi. Sem áður segir merkir þessi óvirkni einungis að efahyggjumaðurinn leggur
ekki til sitt eigið samþykki við sannleika sýnda sinna. Virknin sem um ræðir felst í
samþykkinu og einkennir kennimanninn. Sextos bætir síðan við að efahyggjumað-
urinn lifi lífi sínu með því að fylgja því sem hann nefnir athuganir (tērēsis). Þetta
er tæknilegt hugtak sem Sextos hefur frá empíríska læknaskólanum, raunhyggju-
skólanum, sem hann var sjálfur hluti af (enda hét hann Sextos Empeirikos) og
hafði löngum tengst pyrrhonismanum sterkum stofnanaböndum. Þessar athug-
anir eru einnig einfaldlega nefndar reynsla (gr. empeiría). Efahyggjumaðurinn lifir
því í samræmi við reynslu sína. Læknirinn Galenos skýrir tengsl efahyggju og
læknisfræðilegrar raunhyggju (Höfuðdrættir empírismans, 82 [Deichgräber]): „…
rétt eins og efahyggjumaðurinn er í öllu lífi sínu, þannig er empíristinn í málum
sem varða læknisfræði.“16
Samkvæmt þessum læknaskóla skal stunda læknislistina á grundvelli athug-
ana og reynslu, en ekki kenninga, eins og aðrir skólar vildu meina, sem saman
kölluðust rasjónalistar eða rökhyggjuskóli. Í kafla sínum skrásetur Sextos áhrif
empíristanna og gerir jafnframt greinarmun sem þeir og gerðu (en pyrrhonistar
gera annars ekki) á hinu ljósa (einhverju sem er meðtekið milliliðalaust) og hinu
óljósa (einhverju sem er meðtekið í gegnum millilið), þ.e. á milli þess að meðtaka
hið ljósa og álykta um hið óljósa. Samkvæmt læknunum nemur athugunin eða
reynslan hið ljósa, en lætur vera að ígrunda nokkuð handan hins ljósa. Vegna
þessa greinarmunar væri hægt að skilja mælikvarða pyrrhonistans sem svo að
hann breytti aðeins á grundvelli þess sem hann meðtekur með athugunum sínum
og reynslu án þess að ígrunda á nokkru stigi málsins. En hér verður til spenna,
jafnvel þversögn, innan pyrrhonismans, því þessi greinarmunur er eðlisólíkur
þeim greinarmun sem efahyggjumennirnir annars gera á milli hins ljósa (eða því
sem Sextos segir alla jafnan að þeim sýnist vera raunin) og hins raunverulega.
Með því að segja að efahyggjumaðurinn breyti aðeins á grundvelli þess sem hon-
um sýnist vera raunin er Sextos ekki jafnframt að segja að hann fylgi aðeins því
sem er ljóst milliliðalaust en ekki hinu sem þarf millilið og ályktun. Hann meinar
að efahyggjumaðurinn fylgi aðeins því sem honum sýnist vera raunin, hvernig
svo sem sú sýnd er tilkomin, með eða án milliliða, án þess að taka afstöðu til
sannleika sýndarinnar. Greinarmunur hans er á milli þess sem sýnist vera raunin
og þess sem er í sannleika raunin. Bæði hið ljósa og hið óljósa getur verið öðruvísi
en það sýnist vera. Fyrir Sextosi verður allt óljóst um leið og það er rannsakað og
réttlætt, því öll viðfangsefni geta verið öðruvísi en þau sýnast vera. Það er aðeins í
þeim skilningi sem efahyggjumaðurinn frestar dómi um hið óljósa, því hann fellir
enga dóma um hvernig hlutirnir eru í raun og sannleika. Nú vill svo til að Sextos
veit vel af þessum ruglingi og kvartar síðar í verki sínu yfir empíristunum með
gagnrýni sinni á skoðanir þeirra og kenningar, sem séu ósamrýmanlegar pyrrhon-
ismanum, og segir annan læknaskóla betur við hæfi efahyggjumanna, svonefndan
meþóduskóla eða aðferðaskóla. Skýrum umkvörtun Sextosar eilítið betur.
Samkvæmt Sextosi felst þessi umrædda athugun á eða reynsla af lífinu í fernu.
16 Texta Galenosar má finna í enskri þýðingu í Galen 1985.
Hugur 2018meðoverride.indd 58 24-Jul-18 12:21:23