Hugur - 01.01.2018, Page 33
Hugur | 29. ár, 2018 | s. 33–51
Atli Harðarson
Til varnar hugsmíðahyggju
Athugasemd um heimspekilegar forsendur
eigindlegra rannsókna1
Inngangur
Þegar fjallað er um aðferðir við empirískar rannsóknir í félagsvísindum er þeim
oft skipt í megindlegar (e. quantitative) og eigindlegar (e. qualitative). Megind-
legar aðferðir eru um sumt skyldar aðferðum raunvísindanna. Þær snúast oftast
um eitthvað sem verður mælt eða tölum talið. Gögnin eru gjarnan af því tagi að
hægt sé að beita verkfærum tölfræðinnar á þau. Eigindlegar aðferðir eru skyldari
hugvísindum og notaðar til að skilja reynslu fólks og setja sig í annarra spor.
Dæmigerð gögn eru viðtöl, frásagnir og tjáning sem þarf að túlka og skilja.
Síðustu fjóra áratugi hafa afstæðishyggja og andstaða við frumspekilega og
þekkingarfræðilega hluthyggju (e. realism) verið áberandi í skrifum um heim-
spekilegar undirstöður eigindlegra rannsóknaraðferða.2 Kenningar í þessa veru eru
tjáðar með ýmsu móti. Sumir segja að ekki sé til neinn hlutlægur raunveruleiki,3
aðrir að raunveruleikinn sé hugarburður.4 Stundum eru afstæðishyggja og áhersla
á það huglæga studdar með fullyrðingum um að veruleikinn sé ekki einn heldur
margur. Þegar rætt er um margfaldan veruleika (e. multiple realities) virðist átt við
að fólk sem hugsar með ólíkum hætti lifi í ólíkum heimum, svo það sem er satt
fyrir suma kunni að vera ósatt fyrir aðra.
1 Niðurstöður og meginrök þessarar greinar voru kynnt á The 12th Annual International Conference
on Philosophy sem haldin var í Aþenu í Grikklandi í maí 2017. Styttri grein á ensku um sama efni
birtist á þessu ári, 2018, í ráðstefnuritinu An Anthology of Philosophical Studies: Volume 12. Ritstj.
Patricia Hanna. Aþena: Athens Institute for Education and Research.
2 Howell 2012, Krauss 2005, Erickson 2011, Lincoln, Lynham og Guba 2011.
3 Krauss 2005: 761.
4 Howell 2012: 4.
Hugur 2018meðoverride.indd 33 24-Jul-18 12:21:22