Hugur - 01.01.2018, Page 117

Hugur - 01.01.2018, Page 117
 Eru stjórnmál í eðli sínu ósiðleg? 117 haldi fyrir sérstökum viðmiðum sem eiga eingöngu við um ákveðin störf. Svo dæmi sé tekið veitir samfélagslegt hlutverk og tilgangur fjölmiðlunar blaða- og fréttafólki siðferðilega heimild til þess að nýta í starfi stolnar upplýsingar og neita að gefa upp heimildarmenn, þrátt fyrir að samkvæmt almennu og hversdagslegu siðferði sé rangt að gerast vísvitandi þjófsnautur og rétt að veita eiganda aðstoð við að hafa upp á því sem stolið hefur verið frá honum. Sömuleiðis getur trúnað- arskylda lögmanns við skjólstæðing krafist þess að hann greini ekki frá lögbrotum sem honum bæri annars almenn skylda til að upplýsa um. Lögregla hefur til- teknar heimildir til valdbeitingar undir ákveðnum kringumstæðum, og svo mætti lengi telja. Sérstök siðferðisviðmið innan starfsgreina geta þannig, með vísun í hlutverkabundnar skyldur, réttlætt og jafnvel krafist breytni sem utan starfsvett- vangsins teldist siðferðilega röng eða ámælisverð. Ef stjórnmál eru starfsgrein má með svipuðum hætti búast við að þau hafi sín eigin siðferðisviðmið, sem draga dám af því út á hvað stjórnmálin ganga á end- anum – hvert sé samfélagslegt hlutverk þeirra og tilgangur. En eftir því sem það viðhorf verður áleitnara að stjórnmálin hafi ekki annað hlutverk eða tilgang en að útkljá það með einhverjum ráðum hverjir skuli ráða – þ.e. að stjórnmál séu einber valdabarátta – þá eykst um leið sú hætta að hið sérstaka siðferði stjórnmálanna verði einfaldlega siðferðilegt tómarúm. Allt sé leyfilegt „inni í hringnum“ líkt og í hnefaleikum, sem augljóslega lúta öðrum viðmiðum um mannleg samskipti en almennt gilda í samfélaginu, þó svo að vissulega gildi þar einhverjar reglur og siðferðisviðmið, að svo miklu leyti sem um íþrótt er að ræða en ekki óheft slagsmál. Réttlætingin fyrir afnámi siðferðisviðmiða á sviði stjórnmála væri þá sú að einungis þannig fái stjórnmálin að njóta sín sem valdabarátta og sinna sínu sérstaka hlutverki. Rökin væru á þá leið að rétt eins og hnefaleikar væru ekki hnefaleikar ef ekki mætti kýla, þá væru stjórnmál ekki stjórnmál ef ekki mætti beita klækjum og blekkingum. Innri markmið og rökvísi stjórnmálanna krefðist þannig afnáms venjulegra siðgæðislögmála. Ef við lítum svo á að stjórnmál séu „ekkert annað en valdabarátta, ekkert annað en hrossakaup, ekkert annað en valdastríð og valdaleikur“,19 þá kann tómhyggja um siðferði í stjórnmálum vissulega að vera rökrétt framhald. Þetta á við ef orðin „ekkert annað“ vísa til þess að engin gildi önnur en þau sem eiga rætur í innri markmiðum valdabaráttunnar séu viðeigandi grundvöllur mats á því hvað sé gott eða æskilegt á vettvangi stjórnmála. En þessi hugmynd, um stjórnmál sem ein- bera valdabaráttu, er langt frá því að vera nauðsynlegur eða eðlilegur fylgifiskur þess að líta á stjórnmál sem starfsgrein og einnig langt frá því að vera trúverð- ugt svar við því hver sé samfélagslegur tilgangur stjórnmála. Ekki er víst að það bitnaði sérstaklega á siðferði eða trausti á stjórnmálum þótt litið yrði á stjórn- mál sem starfsgrein, svo framarlega sem markmið og gildi stjórnmála væru ekki talin einskorðast við valdabaráttuna. Þvert á móti gæti slíku viðhorfi fylgt krafa til stjórnmálamanna um sérstaka siðferðilega ábyrgð, hliðstæð við siðferðilegar kröfur til fagstétta, sem sífellt þurfa að sýna fram á að þær verðskuldi það traust 19 Páll Skúlason 1987: 369. Hugur 2018meðoverride.indd 117 24-Jul-18 12:21:27
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136

x

Hugur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hugur
https://timarit.is/publication/603

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.