Andvari - 01.01.2018, Page 20
ANDVARI ÁRMANN SNÆVARR 19
greiða aðstöðu til námsdvalar erlendis að námi loknu hér heima. Námsdvöl
kandídata erlendis hefur, svo sem nú hefur verið drepið á, persónulegt þroska-
gildi fyrir kandídatana. En slík dvöl hefur einnig gildi fyrir þjóðfélagið á
marga lund. Í því efni nægir að benda á þá staðreynd, að þjóðfélaginu er brýn
þörf á því, að kandídatar afli sér sérmenntunar, eftir því sem föng eru frekast
á. Eins og vísindalegri þróun er nú komið, kveður æ meir að sérhæfingu og
sérmenntun, þannig að sums staðar erlendis má kalla, að háskólafræðslan
fram að kandídatsprófum verði aðeins almennur áfangi eða frumundirstaða
undir sérfræðilegri menntun. Þessarar sérhæfingar gætir ekki jafn mikið hér
á landi og víða erlendis. Sú athugun haggar þó ekki því, að rík þjóðfélagsleg
nauðsyn er á því, að hér á landi njóti manna, sem hafi sérþekkingu umfram
almenna háskólamenntun, í flestum fræði- eða vísindagreinum.11
Fjölskyldulíf og heimilishagir
Ármann gekk í hjónaband 11. nóvember 1950. Eiginkona hans var
Valborg Sigurðardóttir, f. 1. febrúar 1922, d. 25. nóvember 2012, og
stóð hjónaband þeirra meðan bæði lifðu. Þau bjuggu lengi í rúmgóðu
einbýlishúsi, sem þau reistu sér að Aragötu 8 í Reykjavík, en eignuð-
ust einnig sumarbústað að Kerhóli í Grímsnesi. Á báðum stöðum undi
fjölskyldan sér vel.
Valborg var merk kona, sem lét mikið að sér kveða á sínu starfs- og
menntunarsviði. Foreldrar hennar voru Ásdís Margrét Þorgrímsdóttir
húsfreyja, f. 1883, d. 1969, og Sigurður Þórólfsson skólastjóri, f. 1869,
d. 1929. Hún fór ung að árum til Bandaríkjanna og menntaði sig þar
árum saman, en stúdent varð hún frá Menntaskólanum í Reykjavík
1941. Sálfræðinám stundaði hún við háskólann í Minnesota 1942-
1943. BA-próf í uppeldis- og sálarfræði tók hún frá Smith College í
Massachusetts 1944 og MA-próf þaðan 1946. Hún gerðist skólastjóri
Fóstruskóla Íslands (er síðar nefndist Fósturskóli Íslands) frá stofnun
hans 1946 og þar til 1985, er hún lét af því starfi. Eftir hana liggja
ýmis ritverk á sérsviði hennar, það er varðandi uppeldis- og kennslu-
mál. Hún var kjörin heiðursdoktor við Kennaraháskóla Íslands 2002
og heiðursfélagi í ýmsum félögum. Stórriddarakrossi fálkaorðunnar
var hún sæmd 1986.
Í fyrrnefndri minningarræðu um Ármann segir meðal annars, að
frú Valborg hafi staðið við hlið manns síns og stutt hann með ráðum
og dáð, og er það síst ofsögum sagt. Þá segir prestur: