Andvari - 01.01.2018, Blaðsíða 95
94 JÓN SIGURÐSSON ANDVARI
niðurlægingu. Ósigur hennar varð logandi sár þegar hún áttaði sig á því að
Daði var hlaupinn af staðnum.
Og verstur hefur ósigur Ragnheiðar orðið þegar barnið var tekið af henni.
Brynjólfur lét taka soninn tveggja mánaða gamlan frá móðurinni, sem þá
var enn í Bræðratungu, og flytja hann að Hruna til föðurforeldranna. Þórður
Daðason lifði til ellefu ára aldurs, lést 14. júlí 1673. En móðirin fékk aldrei
að sjá son sinn aftur. Sorgir hennar og áhyggjur síðasta árið sem hún lifði
urðu því enn þá sárari en ella hefðu orðið.
Skæð farsótt lagðist á Skálholtsstað og Ragnheiður lá lengi fársjúk. Hún
andaðist 23. mars 1663, tuttugu og eins árs að aldri.
*
Þegar þessara atburða er minnst á vettvangi kirkjunnar má bæta þessu við:
Eiðtaka Ragnheiðar Brynjólfsdóttur 11. maí 1661 og aflausn hennar 20.
apríl 1662 eiga engar rætur í boðskap Frelsarans en fylgja ævafornum ætta-
hefðum evrópskra höfðingjaætta til þúsunda ára. Sá hugarheimur er miklu
eldri en kristnin. Ríkiskirkjan átti að framfylgja þessum hefðum og annað
kom ekki til álita. Þaðan af síður lét nokkur maður sér hjartnæma ástarsögu
detta í hug. Þetta voru grjótharðar veraldlegar hagsmuna- og valdsathafnir
höfðingja. En um þær verður sagt með orðum Helga Hálfdanarsonar: ,,Jesús
grætur, heimur hlær“.
FJÖLSKYLDAN:
Brynjólfur Sveinsson 14.9.1605-5.8.1675
Margrét Halldórsdóttir 4.12.1615-21.7.1670
3 börn fædd andvana, 2 börn létust strax óskírð
Ragnheiður 8.9.1641-23.3.1663
Halldór 8.12.1642-1666
Þórður Daðason 15.2.1662-14.7.1673
NOKKUR DÆMI UM LÖGGJÖF, REGLUGERÐIR OG TILSKIPANIR
Lovsamling for Island... I. bindi. Kmh. 1853.
1564 2.7. Stóri Dómur.
1576 19.4. Aabent Brev, at grove Syndere skulle aflöses i Domkirken.
1578 15.5. Aabent Brev, at Aflösning for Hor skal i Island foregaae hos Herredsprovsten.
1585 29.4. Aabent Brev til Island, ang. at Horsager og Blodskam ikke skal straffes med
Böder, men straffes efter Loven.
1587 2.6. Ordinants, hvorledes ud i Ægteskabssager paa Island dömmes skal.
1594 25.4. Reskript til Lensmand Henrik Krag, om Aflösning m.m.