Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.05.2022, Side 81
AlDA BjöRK VAlDImARSDóTTIR
80
sér trú, trú á sig sjálfa og þá trú að hún muni „einn daginn hitta einhvern
sem sé viss um að hún sé sú eina rétta.“92 Þættirnir grafa þó undan þeim
skilaboðum að hinn eini rétti sé til en leitast við að sýna fram á að líf þeirra
einhleypu sé eftirsóknarverðari lífstíll sem snýst að einhverju leyti um að
vera ung, fögur og kynþokkafull kynvera.
nelson heldur því fram í grein sinni að lengi vel hafi konur sem gáfu ekki
upp djammtímann eða skvettutímann (um þrítugt) verið dæmdar barnalegar,
þrjóskar, sjálfselskar, aumkunarverðar og jafnvel óþjóðræknar (e. unpatriot-
ic). Í ársritinu Farmers Almanac frá 1869 voru slíkar konur kallaðar „rýr var-
ningur“ og árið 1920 sagðar vera: „kvenleg afurð sem er sóað; grimmar og
eyðandi mannverur.“ Theodore Roosevelt forseti sagði þær vera svokallað
„kynþáttasjálfsmorð“.93 margt bendir til þess að fordómar í garð einhleypu
konunnar séu þrálátur samfélagslegur kvilli og að samtíminn sé enn að glíma
við afleiðingar af þeirri kröfu kvenna að þær eigi að giftast og eignast börn.
Þáttaröðin svarar slíkum viðhorfum af krafti og gefur til kynna að einhleypar
konur sem eigi góðar vinkonur sakni einskis, hafi það betra en eiginkonur
eða húsmæður, séu frjálsari, klárari, flottari og hamingjusamari.
Sú ákvörðun konu að velja að vera sinn eigin „herra“ og sjá fyrir sér sjálf
hefur oft leitt til þess að það fara af stað dylgjur um kynferði hennar. margir
sjá einnig opna kynferðislega hegðun kvenna sem birtingarmynd lágkúru.94
Ef þær eru of kynferðislegar kemur það í veg fyrir að þær eignist góðan
mann. Hér má minna á persónuna Edie Britt (nicollette Sheridan) í sjón-
varpsþáttaröðinni Desperate Housewives en þar er sjónarhorninu snúið við því
að áhorfandinn heyrir fyrst og fremst sögur húsmóðurinnar í stað einhleypu
konunnar sem passar þá ekki inn í samfélag vinkvennana og er útilokuð,
smánuð og skilgreind sem kynferðislega óheft og hættuleg.95
Sex and the City þáttaröðin er gagnrýnin á hugmyndir um kynferðislegu
eða einhleypu konuna. Aldamótafemínistarnir einblíndu í auknum mæli á
92 The Sex and the City, „Oh Come All Ye Faithul“ (1:12).
93 Sjá Ashley nelson, „Sister Carrie meets Carrie Bradshaw exploring progress,
politics and the single woman in Sex and the City and beyond“, bls. 85. „They were
labelled ‚diminished goods‘ in a Farmer‘s Almanac of 1869; ´waste products of our
female population … vicious and destructive creatures´ by a 1920s-era critic; and
accused of nothing less than ´race suicide´ by President Theodore Roosevelt.“
94 Imalda Whelehan, The Feminist Bestseller. From Sex and the Single Girl to Sex and the
City, new York: Palgrave macmillan, 2005, bls. 40.
95 Sjá Desperate Housewives (2004–2012), framleiðandi mark Cherry, sjónvarpsstöð:
ABC Studios, leikarar, Eva longoria, Teri Hatcher, marcia Cross og Felicity
Huffman.