Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.05.2022, Side 89
AlDA BjöRK VAlDImARSDóTTIR
88
fyllingar og fjölskyldunni sem fyrirbæri. Samfélagsformgerðin sem byggir
á hjónabandi og fjölskyldulífi er að leysast upp. líklegt er að hugmyndin
um Big sem fulltrúa eitraðrar karlmennsku eigi eftir að dýpka nú þegar nafn
Chris noth sem kynferðislegs rándýrs er bundið stjörnuímynd hans. ný-
verið stigu fimm konur fram og ásökuðu leikarann um kynferðislegt ofbeldi,
nauðgun, áreitni og hótanir um að eyðileggja feril þeirra ef þær segðu frá.120
Þessar ásakanir munu án efa lita ímynd mr. Big í þáttunum og kvikmyndum
og draga enn frekar fram þá túlkun að hann sé karl sem kemur illa fram við
Carrie og aðrar konur. Carrie sé því undir áhrifum af ástarsagnagreininni (e.
romance) þegar hún afsakar hrottalega hegðun karlhetjunnar með þeirri út-
skýringu að um óttablandna ást eða þrá sé að ræða.121 Ef frásagnir kvennanna
um meint brot noth eru hafðar í huga verður mr. Big ekki stóra ástin eða
stóra vandamálið, heldur fremur stóri misnotarinn.
Imalda Welehan bendir á það í bók sinni The Feminist Bestseller að í seinni
hluta seríunnar fari myrka hliðin á „raunverulegu“ lífi að koma fram. Sam-
antha fái krabbamein, Charlotte glími við ófrjósemi, miranda kynnist álag-
inu við að ala upp ungt barn og Carrie reyni af örvæntingu að láta samband
hennar og Big ganga upp. Konurnar séu orðnar raunamæddar og aðeins of
gamlar til þess að vera úti í hringiðunni.122 Það er því spurning hvort hin
ferska, einhleypa og frjálsa kona fyrstu áranna verði örlítið þreytt. Í þessu
samhengi má minna á upphafið að sögu Edith Wharton, The House of Mirth
þegar söguhetjan lily Bart útskýrir erfiða stöðu sína fyrir vini sínum Selden
og segir við hann: „Ég hef verið hér viðloðandi of lengi – fólk er byrjað að
vera þreytt á mér, þeir eru farnir að segja að ég ætti að gifta mig.“ Selden spyr
hana: „Er ekki hjónabandið köllun þín? Er það ekki hluti af uppeldi ykkar?“
lily dæsir og svarar: „Ég geri ráð fyrir því. Hvað höfum við annað?“123
120 Sjá t.d. Elizabeth Wagmeister, „Chris noth Accused of Sexual Assault by a Fifth
Woman“, Variety, 23. desember 2021, sótt 1. mars 2022 af https://variety.com/2021/
tv/news/chris-noth-sexual-assault-allegations-gloria-allred-sex-and-the-city-be-
verly-johnson-1235142754/.
121 Um lesendur ástarsagna sjá janice A. Radway, „Woman Read the Romance“, Women
and Romance. A Reader, new York: new York University Press, bls. 327–330.
122 Imelda Whelehan, The Feminist Bestseller. From Sex and the Single Girl to Sex and the
City, bls. 207.
123 Edith Wharton, The House of Mirth, london: Wordsworth Editions, 1997, bls. 8:
„I‘ve been about too long – people are getting tired of me, they are beginning to say
I ought to marry.“; „Isn‘t marriage your vocation? Is it not what you‘re all brought
up for?“ „I suppose so. What else is there.“