Læknaneminn - 01.10.1995, Page 151
ARSSKYRSLA
SKÝRSLA KENNSLUMÁLA- OG
FRÆÐSLUNEFNDAR
Nefndirnar sameinaöar
A síðasta aðalfundi haustið 1994 voru samþykktar ýmsar
breytingartillögur á stjórnskipan Félags Læknanema. Þar á meðal
var samþykkt að sameina kennslumálanefnd og fræðslunefnd í eina
kennsiumála- og fræðslunefnd (hér með er auglýst eftir betra nafni
á nefndina) sem tæki að sér hlutverk beggja nefnda. Innan
nefndarinnar er 5. árs fulltrúinn formaður og sem slíkur ber hann
ábyrgð á starfi allra málaflokka. Jafnframt því hefur hann umsjón
með öllum kennslumálum eins og fundasetu í kennslunefnd,
skipulagningu kennslumálaráðstefnu, bréfaskrif og annað sem fellur
til vegna kennslumála. 4. árs fuiltrúinn sér um fræðslumál en í því
felst aðallega skipulagning fræðslufunda, hópslysaæfingar og
skyndihjálparnámskeiðs auk umsjónar með fræðabúri.
Nemendaráðgjöf er í síðan í höndum 3. árs fulltrúans. Ohætt er að
segja að breytingin hafi tekist mjög vel og hefur verkaskipting og
samstarf gengið snurðulaust fyrir sig.
Kennsiumálaráðstefna og skýrsla
I janúarlok var haldin kennslumálaráðstefna annað árið t röð.
Skipulagning og ráðstefnan sjálf heppnuðust mjög vel en 35 manna
þáttaka olli þó vonbrigðum. Skýrsla sem samin var upp úr
niðurstöðum hópa fór hefóbundna leið: var rædd á deildarráðsfundi,
send til allra fastráðinna kennara í deildinni og birtist auk þess í
Læknanemanum. I ljósi slælegrar mætingar á ráðstefnuna geri ég
ráð fyrir að í framtíðinni sé nægjanlegt að halda slíkar ráðstefnur á
tveggja til þriggja ára fresti. I staó ráðstefnunnar gæti nefndin
kallað saman umræðuhópa um einstök málefni eða kennslugreinar
og skrifað málefnaleg bréf til þeirra sem málið varðar hverju sinni.
Þessi aðferð á sérstaklega við þegar nýir kennarar taka við störfum.
A þennan hátt fæst einnig betri umfjöllun um kennsluna, en
kennarar kvörtuðu einmitt yfir því að umfjöllun um einstök fög í
skýrslunni hefði verið of yfirborðskennd þrátt fyrir að hún væri yfir
15 blaðsíður að lengd.
Verkleg heimilislæknisfræði lengd í 2 vikur
og önnur vika tckin út á landi
Ein af þeim tillögum til úrbóta sem birt var í skýrslunni var að
lengja kúrsinn í heimilislæknisfræði á 5. ári úr einni viku í tvær og
skyldi önnur vikan tekin utan höfuðborgarsvæðisins. Nú í vetur
verður þetta prófað í fyrsta sinn. Má búast við að með því öðlist
læknanemar talsvert meiri reynslu af almennu læknastarfi,
sérstaklega í jöðrum heilbrigðisapparatsins en það hefur oft verið
talið vanta í læknanámið, hversu lítið nemar komast í snertingu við
sjúklinga sem eru að koma með sín vandamál og einkenni í fyrsta
skipti til læknis.
Safnað undirskriftum vegna geðlækniskúrs og hann styttur
Forsenda þess að einn kúrs lengist er sú að annar styttist. Að
margra mati (en ekki allra) er af nógu að taka á 5. ári því
samanlagður tírni fyrir taugalæknisfræði og geðlæknisfræði hefur
verið 15 vikur undanfarin ár. En nú gat kennslustjóri, vopnaður
undirskriftalista frá 5.árs nemum og nýfengnu valdi um úthlutun
kennslutíma, skikkað prófessorinn í geðlæknisfræði til þess að
stytta tíman tynr þessi fög í 14 vikur.
Fyrirlestrum í Ivfjafræði fækkað
I kjölfar bréfs sem skrifað var til forstöðumanna í lyfjafræði
um námsefni fagsins ákvað kennslustjóri að fækka fyrirlestrum í
faginu um 15. Er þetta annað dæmi um hið nýfengna vald
kennslustjóra en þar til fyrir ári var kennslustjóri eingöngu
ráðgefandi hvað varðar fyrirlestrafjölda og lengd kúrsa. Samkvæmt
fundargerð kennslunefndar er kennslan einnig í gagngerri skoðun
hjá kennurum og veitir ekki af, því allt of lítil samvinna hefur verið
milli faga á 3. ári. Sem dæmi má nefna að kennsla í sýklafræði og
lyfjafræði hafa hingað til lítið verið samþætt þó fögin eigi sér
vissulega marga sameiginiega snertifleti.
Bréf til lífefnafræðikennara
Nýskipaður prófessor í Lífefnafræði sendi Félagi Læknanema
fyrirspurn um viðhorf læknanema til kennslu í lífefnafræði. Við
brugðumst við þessari sjaldgæfu en mjög ánægjulegu viðleitni
kennarans með því aö kalla saman kennslumálanefndina ásarnt
nokkrum 2. árs nemurn og ræddum galla, kosti og leiðir til úrbóta í
lífefnafræðikennslu. 1 kjölfar fundarins var barið saman langt bréf
og í því reynt að reifa kennsluna á sem flestum sviðum.
Prófessorinn brást vel við bréfinu og er það mál manna sem nú sitja
kúrsinn að fram að þessu hafi hann verið Iærdómsríkur en jafnframt
kreíjandi. Svo er það annað mál hversu mikinn þátt bréfið á í því.
Bréf til sálarfræðikennara
Nýr kennari tók við kennslu í sálarfræði síðastliðinn vetur og
stóð talsverður styr um hvort taka ætti próf í faginu á 2. ári eða ekki.
Fór svo að ekkert varð úr prófi en næsta vor verður þó ekki slíkri
sælu að dreifa. Með tilkomu sama kennara eykst námsefni nýnema
um talsverð prósentustig því nú hefur verið tekin upp 327 síðna
kennslubók í sálarfræði auk ítarefnis sem tekið verður próf úr í
samkeppnisprófum Er það skoðun allra í kennslumálanefnd að
þetta námsefni sé í engu samræmi við vægi fagsins í prófunum og
engar forsendur séu fyrir því aö bæta slíku á lesiista claususnema.
Því prófuðum við bréfaaðferðina á nýjan leik og lögðum til við
kennarann að síðustu 100 blaðsíðunum yrði sleppt og ítarefni
takmarkað eins og mögulegt væri. Einnig lögðum við til að í
framtíðinni verði Sálarfræði II kennd á vorönn 1. árs og bókin þá
kláruð og þar af leiðandi kúrsinn Fræðileg aðferð færð upp á vorönn
2. árs. Þetta mál er í gerjun þessa dagana og hefur því ekki verið
lagttil lykta.
Tutorakerfi
Hið margfræga Tutorakerfi hóf starfsemi sína á síðustu vorönn
og hefur farið mismikið fyrir því. Sumir framhleypnir kennarar
hringdu í skjólstæðinga sína og buðu þeim í rabb rneðan ekkert
heyrðist í öðrum. Þó að lítið fari fyrir kerfinu held ég að það sé af
hinu góða því dæmin sanna að nemendur lenda sumir í vandræðum
með skipulag námsins og þá ætti að vera gott að geta leitað ráða
hjá aðila sem þekkir kerfið og talar máli manns hinum megin við
borðið.
Tölvuvæðing
Eitt af þeim málum sem lögð var hvað mest áhersla á í skýrslu
kennslumálaráðstefnu var að læknadeild yrði tölvuvædd með einum
eða öðrum hætti. Við teljum það eitt af brýnustu málum í deildinni
að þessum málum verði kippt í liðinn. Til að mynda er mikið
tölvutækt námsefni í lífTærafræði tilbúið til kennslu en allt strandar
á vélbúnaðinum. Auk þess er ógrynni læknisfræðilegra upplýsinga
að fá á internetinu. Búið er að reikna að það kosti rúmlega tvær
milljónir að fá þann tölvukost sem þarf til þess að tölvuvæða
anatomiukennsluna og í Ijósi fjárfestinga í alræmdum sófum sem
kostuðu hátt á þriðju milljón ætti það ekki að vera vandkvæðum
LÆKNANEMINN 2. tbl. 1995 48. árg.
141