Úrval - 01.05.1968, Blaðsíða 35
HVENÆ'R ER OF HRATT EKIÐ?
33
Hugmyndin fékk ekki fylgi al-
mennings og og ekki heldur hjá
sérfræðingum í umferðamálum,
nema fáeinum. Goen segir að sér-
fræðingar þessir haldi fram tveim-
ur sjónarmiðum, sem ekki geti
samrýmst: þeir vilji draga úr
slysahættunni, án þess að dregið
sé úr hraðanum, en ekki verði bæði
sleppt og haldið.
Dr. William Haddon, yngri, for-
maður umferðaöryggisvarnamála
ríkisins, hefur gengizt fyrir um-
ræðum í þinginu um það, hvort
Bandaríkjamenn þarfnist farar-
tækja, sem geti farið hraðar en
160 km. á klst. Hann tók dæmi ai
manni, sem fórst þegar bíll hans,
sem var á 200 km. hraða, þaut inn
á brú og rakst þar á. Platan, sem
leyfið til að aka svona hratt, var
skráð á, varð undir og orðin stimpl-
uðust í steinsteypuna.
☆
BingóæÖiÖ.
Ég gekk fram hjá bingóbiðröð í Dublin nýlega, og var þar næsturn
eingöngu um konur að ræða. Þá sá ég likfylgd nálgast. Ég beið, meðan
likfylgdin var að fara fram hjá. Þá sá ég, að miðaldra kona steig út
úr biðröðinni og féll á kné, meðan líkfylgdin fór fram hjá. Hún barði
sér á brjóst þrisvar sinnum og tautaði: „Miskunn! Miskunn! Miskunn!"
Þegar hún gekk aftur í biðröðina, spurði konan við hliðina á henni:
„Hvers vegna féllstu á kné?“ Þá svaraði konan: „Nú, hvers vegna
skyldi ég ekki gera það? Var hann mér kannske ekki góður eigin-
maður?“
Grafskrift á iegsteini svartsýnismanns: „Ég bjóst við þessu, og
hér er ég.“
Það eru aðeins 5% manna í flotanum, sem hafa sjóinn í æðum sér.
Þetta eru einmitt þeir, sem verða skipstjórar. Upp frá því eru þeir
einangraðir í brúm sínum. Ef þeir eru ekki þegar brjálaðir, áður en
það er gert, verða þeir brjálaðir þar, og þeir brjáiuðustu verða svo
aðmírálar.
..... Bernard Shaw...
Konur standa miklu betur að vígi en. karlar að einu leyti. Það er
almennt álitið, að giftist kona, sé hún þegar búin að gera nóg og
þurfi ekki að sýna neina viðleitni til þess að „komast áfram.“ En
giftist maður á hinn bóginn, er almenningsálitið á móti honum, ef
slíkt er skoðun hans, hvað hann sjálfan snerti.
Rose Macaulay.