Úrval - 01.05.1968, Blaðsíða 89
ROCKEFELLER CENTER
87
tækisins stofnuðu „Gangstéttaeftir-
litsmannaklúbbinn“, létu prenta
meðlimakort og afhentu þau þeim,
sem stönzuðu við gluggana til þess
að fylgjast með verkinu.
Fyrstu byggingarnar, sem risu,
virtust ekki hafa heppnina með sér
fyrst í stað, hvað reksturinn snerti,
þar á meðal RCA-skýjakljúfurinn
(Radio Corporation of America) og
tvö Radio-Keith-Orpheum (RKO)
hús með útvarpsáheyrendasölum,
kvikmyndasölum og leiksviðum, en
samkvæmt áætlun Rockefellers áttu
þau að verða hjarta „útvarpsborg-
ar“, sem lifandi tákn hinnar vax-
andi fjölmiðlunargreinar, útvarps-
ins. Það kom fram, að RCA þarfn-
aðist aðeins helmings þess skrif-
stofuhúsnæðis, sem það hafði sam-
ið um fyrir fram. Og það reis deila
við útvarpsstöðina National Broad-
casting Co, viðvíkjandi húsnæðis-
kostnaðinum fyrir hana í sömu
byggingu. Endurskoða varð báða
þessa samninga við útvarpsfélög
þessi til mikils tjóns fyrir Rocke-
feller.
En það ömurlegasta var þó, að
það gekk mjög illa með leik- og
kvikmyndahúsin Radio City Music
Hail og RKO Roxy, sem mikið
höfðu verið auglýst og mikils var
vænzt af. Að vísu höfðu þau verið
opnuð með miklum glæsibrag, en
aðsóknin var miklu minni en búizt
hafði verið við. Radio City Music
Hall tapaði 180.000 dollurum á 16
dögum, og nokkrum mánuðum síð-
ar var RKO orðið gjaldþrota. Það
virtist því vera alveg úti um áætl-
un Rockefellers um gróðavænlega
leigu á leik- og kvikmyndahúsum
þessum í hinum nýju skýjakljúfum.
En Rockefeller bað samt þá, sem
gagnrýndu allt þetta fyrirtæki hans
sem ákafast, að bíða með að fella
dóm, þangað til „endanleg úrslit
gerðu mönnum fært að kveða upp
réttlátan dóm“.
MEIRA RÚM,
MEIRI LIST, MEIRI GLEÐI.
Og núna, á 35 ára afmæli fyrstu
opnunarinnar í Rockefeller Center,
hefur dómurinn verið kveðinn upp.
Sá dómur var að vísu kveðinn upp,
löngu áður en höfundur þessa sköp-
unarverks dó árið 1960. Og það er
ákveðinn dómur. Rockefeller Cent-
er hefur fært út kvíarnar og nær
nú yfir 17 ekrur og telur alls 18
byggingar innan vébanda sinna. Og
fyrirtækið hefur borið sig alveg
prýðilega. Þetta er Paradís skemmti-
ferðamanna. Það er álitið, að stað-
urinn dragi til sín rúmlega 200.000
manns daglega, bæði starfsfólk, sem
vinnur í byggingunum og gesti, sem
njóta blómagarðanna, hvíla sig á
bekkjunum, horfa á skautafólk á
útiskautasvellinu, taka milljónir af
myndum og' skoða þetta glæsilega
torg sem væri það aðaltorg í smá-
bæ, staður, sem allir eiga leið um
og öllum þykir vænt um.
Áður var um taprekstur að ræða,
en nú stendur fjárhagur Rockefell-
er Center með miklum blóma. Áður
mætti fyrirtæki þetta mikilli gagn-
rýni, blandaðri fyrirlitningu, en nú
ljúka menn upp einum munni um
ágæti þess. Og hverjar eru ástæð-
urnar fyrir þessum stórfelldu breyt-
ingum? Sumir halda því enn fram,
að byggingarnar séu ósköp sviplitl-